Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Blaðsíða 27

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Blaðsíða 27
kominn heim. Han hafði alls ekki fundið fyrir þessu, þegar hann gekk inn í hið glæsielga Mayfair-hús sem hann og Marjorie höfðu leigt. Það hafði virkað snoturt, en ókunnug- Jega. Upphátt sagði hann: „Góðan dag, Natalie. % sé að þú ert þegar byrjuð á skyldustörf- unum.“ »,Já, herra Brad. Ég byrjaði í gær. En ég ^ná ekki kalla þig herra Brad lengur,“ bætti hún við og brosti lítið eitt. „Þú verður að afsaka.“ ,Allt í lagi. En ef til vill er bezt að þú gerir það ekki — að minnsta kosti ekki í áheyrn slúklinganna, og ég verð víst neyddur til að kalla þig ungrú Norris, þótt það sé reyndar hálí kjánalegt af mér.“ „Ég get ekki lýst því hvað ég er þakklát fyrir að þú skyldir ráða mig,“ sagði hún lágt. „Og ég er glaður yfir að hafa haft tæki- íæri til þess. Ég er þess fullviss að þú verður mer ómetanleg hjálp í störfum mínum.“ Natalie hafði nú aftur fengið sinn eðlilega htarhátt í andlitinu, og virtist hafa náð jafn- v®gi. Aðeins hjarta hennar barðist ákaft, en þa3 gat engan grunað. , Hefur nokkuð sérstakt gerst, síðan þú homst hingað?“ spurði hann. „Ungfrú Muns- fordsendi mér skýrslu um allt sem skeði aaeðan ég var í burtu, til dagsins, sem hún hætti störfum." „Hún sagði mér að hún mundi gera það. Arnmering læknir hringdi í gær, varðandi sJúkling, sem hann óskaði að þér lituð á. Það er úrengur sem verið hefur krypplingur allt Sltt líf. Hann sagði að foreldrarnir væru ríkir °g vildu greiða hvað sem væri, ef hægt væri hjálpa honum. En læknirinn virtist ekki úlíta neina von til þess.“ „Það er alltaf von,“ svaraði hann alvarlega. „Það er vonin sem veitir okkur gleði í þessu starfi, Natalie. Vissan um að það sé von. Sjáðu aðeins hvað margt er hægt að gera í hag, sem var útilokað fyrir nokkrum árum. ^ísindin taka risaskref á ári hverju, og það Sem er ómögulegt í dag er aðeins venjulegt á ^°rgun. í dag. á morgun já, hvern dag, atalie, heldur baráttan áfram, baráttan við sJúkdóma og pestir. Það er stríð, Natalie, þar Sern þú og ég, og aðrir eins og við, erum í remstu víglínu. í þessu stríði við óvini okkar HeIMIL verðum við að sigra, Natalie, þar til sjúk- dómar, þjáningar og dauði verður afmáð, óþekkt og gleymt, eins og fornarldarskrímsl- in.“ Hann þagnaði skyndilega og brosti. „Ég ætlaði mér ekki að þreyta þig. Ekki fyrsta daginn sem þú starfar hjá mér.“ „Hættið ekki, Brad,“ hvíslaði hún, og stóru brúnu augun hennar ljómuðu. , Þannig talað- irðu við mig, þegar ég var barn. Það var þess vegna sem ég gerðist hjúkrunarkona. Vertu nú svo góður, og talaðu einmitt við mig á þennan hátt — það veitir mér styrk. Það fær mig til að finna það og sannfærast um, að starf mitt hefur einhvern tilgang." „Finnst þér nokkurntíma að allt sé einskis- vert?“ spurði hann hljóðlega, og færði sig nær henni. „Þú ert allt of ung til að hugsa þannig." , Stundum kemur það fyrir.“ Rödd hennar var varla heyranleg, og hún leit niður fyrir sig. Hún settist aftur við skrifborðið, því hún skalf í hnjánum. Hún hugsaði um morguninn, þegar hún hafði lesið um brúðkaupið. „En það kemur ekki oft fyrir,“ bætti hún við. Natalie var fljót að tileinka sér starfið, og af því að hún var bæði dugleg og áhugasöm, leysti hún störf sín af hendi með mestu prýði. Hún var óþreytandi og eljusöm, og lifði að- eins fyrir starf sitt andstætt við Annabel. , Þú ert brjáluð," sagði Annabel. „Hvaða vit er að eyða beztu árum ævinnar í hugsjóna- þrældóm. Þú ert svo uppgefin á hverju kvöldi, að þótt þú drifir þig í samkvæmi, hefurðu ekki rænu á að líta almennilega út, svo að þú dragir að þér athygli karlmannanna. Þú eyðir ungdómsárunum í að eltast við draum.“ Natalie leit upp, og það var óttablik í brúnu augunum hennar. , Hvað meinar þú, Annabel? Eltast við draum?“ Annabel yppti öxlum. „Ég sagði það. Þessi Brad læknir. Hann er draumvera. Þótt þú vinnir með honum hvern einasta dag, held ég að þú hugsir aldrei um hann sem raunveru- legan mann. Hann er yfirnáttúrulegur — eins- konar guð. Það er þess vegna, sem þú umberð þetta, þótt hann virðist vera í hamingjusömu hjónabandi. Þú álítur hann hátt yfir alla aðra hafinn, og þess vegna hefurðu ekki áhuga á að umgangast venjulegt fólk. Það er hættu- legt. Þú ert álitleg stúlka, Nat. Þú ættir að ISBLAÐIÐ 115

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.