Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Síða 30

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Síða 30
Við. sem vinnum eldhússtörfin Nú fara tómatar að koma á markaðinn og það er hægt að nota þá í fleira en ofanálag. Hér eru uppskriftir af nokkrum tómatréttum, sem má nota sem forrétt, eða einn rétt á köldu borði. Ostagratineraðir asparagustómatar: Skerið lok af nokkrum jafnstórum tómöt- um og takið varlega innan úr þeim. Raðíð tómötunum þétt saman í smurt ofnfast fat og leggið nokkur asparagusstykki sem búið er að brúna í ofurlitlu smjöri ofan í hvern tó- mat. Látið hráa eggjarauðu varlega ofan á aspargusstykkið. Sáldrið salti og pipar yfir og stráið einnig muldum osti yfir. Setjið fat- ið inní vel heitan ofn 225—250° í 10—12 mín. í staðinn fyrir asparagus má setja brúnaða sveppi eða bacon. Tómatar fylltir með lifrarkæfu og sveppum: Skerið lok af jafnstórum tómötum, vel þroskuðum en ekki linum og takið varlega innan úr þeim. Hrærið góða lifrarkæfu upp með rjóma, (gerið ráð fyrir lOOgr . af kæfu í 3 tómata), þangað til kæfan er svo lin að hægt er að sprauta henni ofan í tómatana. Ofurlítið konjak eða madeira saman við kæf- una gerir hana ekki verri. Blandið fínsöxuð- um sveppum saman við. Skreytið með sveppa- sneiðum og steinselju (persille). Þessir tómatar eru beztir kaldir. Tómatar með norskri fyllingu: Saxið þrjú harðsoðin egg ásamt 6 sardín- um og blandið 3 msk af fínsöxuðum lauk og 2 msk fínt saxaðri steinselju út í. Blandið þessu saman við mayonaise sem ofurlítið af rjóma er hrært út í og bragðbætt með sinnepi eða karry. Látið blönduna í tómatana og skreytið með steinselju. Borðaðir kaldir. Hversdagstómatar: Þrýstið úr grófhakkaðri medisapylsu út í tæmda tómata og smyrjið yfir með sinnepi, sáldrið með raspi, látið smjör ofan á, látið nokkuð þétt í ofnfast fat og látið í vel heitan ofn ca. 250° í 15—20 mín. Og svo er það blessaður fiskurinn, sem nóg er af á Islandi. Hér eru tvær mjög góðan uppskriftir: Þorskur með sítrónu: 3 dl vatn, 1 meðalstór laukur (skorinn í sneiðar' 1 púrra (skorin I hringi) 1 gulrót í sneiðum 3 brúskar steinselja 1 lárberjablað, salt, pipar ca 600 gr þorskflök 1 sítróna í sneiðum 2 msk smjör eða smjörlíki. Allt grænmeti ásamt kryddi er soðið í ca. 20 mín. í vatninu undir loki. Fiskurinn, sem er skorinn í sundur, er lagður í smurt ofnfast fat og er þakið með grænmetinu. Stingið sítrónusneiðunum í. Smjörið er lagt í smá klumpa og fatið látið í ofninn við 200° í 15—- 20 mín. þangað til fiskurinn er gegnsoðinn. Þetta er auðveldur og góður réttur og nægir handa fjórum. Ofurlítil steinselja er klippt niður og sáldrað yfir. Borðað með hveitibrauði. Fiskifat með tómathrísgrjónum: Látið eftirfarandi krauma í þykkbotnuðum potti. 3 mask. olía 3 msk. fínsaxaður laukur 3 dl hrísgrjón og bætið út í eftir nokkra rmínútur 3 msk tómatsósu 6 dl vatn. Látið hrísgrjónin sjóða, látið lok yfir og sjóðið við 225° hita í ofni í ca. 20 mín. Hrærið upp í hrísgrjónunum með gaffli og sáldrið saxaðri steinselju yfir. 118 H E I M I L I S B L A Ð I í>

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.