Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Qupperneq 32

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Qupperneq 32
Strúturinn hefur boðið Kalla og Palla í afmælis- veizlu. Hann er orðinn fimm ára og Kalli og Palli kaupa tvo háa og fallega kaktusa handa afmælis- barninu. En fyrir utan hús strútsins stendur grís- inn og gefur gestunum blöðrur. En kaktusarnir koma víst of nærri blöðrunum, þvi þær springa allar nema ein. Það var skammarlegt, en sem betur fór átti strútsmamman nógar blöðrur handa gestunum. „Æ,“ kallar Kalli, „nú höfum við lokað lykilinn inni á kommóðunni! Hvað eigum við að gera?“ Palli er súr á svipinn, því hann er syfjaður og þreyttur, og sólin í Afríku er allt of heit til þess að leggja sig utan dyra. Kalli er hinn rólegasti og fer niður um reykháfinn og birtist brátt i dyrun- um og opnar fyrir Palla, sem verður fyrst ótta- sleginn, því Kalli er biksvartur eftir ferðina niður sótugan reykháfinn. Kalli verður því að fara út í skógartjörnina og baða sig. En hvað haldið þið að hafi skeð? Kalli gleymdi að taka lykilinn á komm- móðunni, og nú eru dyrnar aftur læstar.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.