Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1976, Blaðsíða 14

Heimilisblaðið - 01.01.1976, Blaðsíða 14
Simone virti myndina lengi fyrir sér. „Nei . . . onei . . . og þó! Það er eitthvað við augn- svipinn sem kemur mér kunnuglega fyrir sjón- ir, en ég man ekki hvar ég hef séð hana“. „Þetta er Ijósmynd af tvífara yðar. Bíðið andartak. Hér er önnur mynd eldri; kannski getur hún hresst upp á minnið“. Simone hafði varla litið myndina augum, er hún hrópaði upp: „Þetta er hún Justine Carnier — móðir hennar starfaði hjá for- eldrum mínum. Ó . . . skömmin sú arna!“ Bankastjórinn var risin á fætur. „Heyrið mig, ungfrú góð! Viljið þér gefa mér eins dags frest til að komast til botns í þessu . . . þessum misskilningi?" Klukkustund síðar sat önnur „Simone Vér- ard“ í skrifstofu bankastjórans, kölluð þang- að símleiðis. Rodena bankastjóri var ekki sú manngerð sem lætur blekkja sig til lengdar. Hann hafði ekki látið undir höfuð leggjast að komast til botns í því, hvor stúlknanna tveggja hefði á réttu að standa — hvor þeirra væri hin raun- verulega Simone Vérard, — en nú var hann búinn að komast til botns í því. Þegar J ust- ine sá, að allt hafði komist upp, játaði hún. I því skyni að komast betur áfram hafði hún tekið upp nafn vinnuveitanda móður sinnar og þóttist vera dóttir verksmiðjueigandans. Þetta fannst bankastjóranum vera svo sem nógu slæmt, en að ætla svo að ganga í hjú- skap undir fölsku flaggi — það þótti honum heldur langt gengið. Hvernig gat hún yfirleitt ímyndað sér, að slíkt gæti gerst? Hvernig hafði hún hugsað sér að útvega nauðsynlega pappíra í því skyni? Nú, — það hafði Justine ekki hugsað út í, en álitið að það væri máski ekki svo erfitt, og svo fægar hún væri einu sinni komin í hjónabandið, þá gengi allt af sjálfu sér. Roden leit á hana ævareiður. „Ég hefði þó komist að öllu fyrr eða síðar“. Veslingurinn, hugsaði Justine, ef ég hefði á annað borð getað klófest þig, þá hefðirðu ekki losnað strax aftur. En upphátt sagði hún og brosti um leið sínu sætasta brosi: „Hvað á þetta allt saman að þýða? Var það ég eða nafnið, sem þú elskaðir . . . og elsk- ar enn?“ „Þú mátt láta sögnina vera í þátíð. Hvað mig snertir er allt búið á milli okkar. Og ég má gefa þér gott ráð, þá fjarlægðu þig vettvangi þegar í stað. Það er mjög alvarlegt mál að ætla að falsa persónuskilríki, — Þa® getur reynst dýrkeypt“. Daginn eftir hitti Rodena hina sönnu SirO' one til að segja henni málalokin; en það tókst reyndar ekki í eitt skipti fyrir öll — til t®55 þurftu þau endurtekin stefnumót. Þessi unga og skapfestulega stúlka hafðt visst aðdráttarafl í hans augum. Og þegaf hann einn daginn sagði: „Ósannindi geta stundum breyst í sannleika, og úr því að trU' lofun okkar er einu sinni komin í hám®'1, . . *o<4 eigum við þá ekki að gera alvöru úr henni. — þá samþykkti Simone. Á morgni brúðkaupsdagsins sagði Sinione við hann: „Finnst þér ekki, að við ættuni al) senda Justine eitthvað til minja um þetta allt- Það er þó hún, sem við eigu mhamingju okk' ar að þakka. . . .“ „Ég hef nú þegar hugsað út í það, elskan mín“, svaraði hann brosandi, „því ég send' henni peningaávísun . . . ásamt fyrirgefninS11 okkar.“ Þcgar allar dyr voru læstar til kærastans, varð hún að fara þessa leið. HEIMILISB laðiV 14

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.