Heimilisblaðið - 01.01.1981, Page 26
Kalli og Palli hafa lesið að maður eigi að fylgjast
með þyngd sinni, því óhollt sé að vera of þungur. Þess
vegna kaupa þeir sér vog og hin dýrin fylgjast með
þessari nýjung þeirra. Gíraffamamma biður þá að gá
aö hvort unginn hennar sé ekki of þungur. Allt í lagi
með hann. Mýflugan vill líka fá að vita hvort hún sé
of þung, en vísirinn á voginni hreyfist ekki þótt bún
stígi á hana. En þegar fíllinn vill láta vega sig mót-
mæla Kalli og Palli. Þeir vega hvern fót hans fyrir sig
og leggja siðan saman. En bara að þeir geri það rétt!
Kalli hefur keypt fimm litlar endur í borginni. Palla
finnst þær fallegar og flýtir sér að hleypa þeim út.
Þær virðast vera lífsglaðar og labba um allan daginn
kyrjandi bra-bra. í fyrstu finnst Palla gaman að hafa
lifandi smádýr í kringum sig. En loksins fer honum
að finnast þetta stanzlausa bra-bra-bra?bra þreytandf
og þegar hann er búinn með stórþvottinn og er
hengja hann upp, er honum nóg boðið. Hann hefu'
því ekki önnur ráð en að setja þvottaklemmu á »e
andanna. Og það dugði til að þagga niður í þeim-