Einingin - 01.09.1902, Blaðsíða 1
EININGIN.
Blað Umdæmisstúkunnar nr. 3.
—o—
Qifsfjóri: Bjarni Lyngholf.
I. ár. Akureyri, september 1902. $$ 4. blað.
Gistihúsa skortur.
Hann er nú orðin tilfinnanlegur víðsvegar um landið.
Það er ekki að ástæðulausu, þó bindindisstarfseminni sé kent
um það, hve miklum erfiðleikum það nú er bundið, að fá leyfi til
veitingar áfengra drykkja, því auk þess, sem hin núgildandi áfengis-
löggjöf má óbeinlínis teljast henni að þakka, geta bindindismenn
nú átt mjög mikinn þátt í að afstýra áfengisveitingarleyfi í hverju
einstöku tilfelli, eins og líka hin stutta reynsla, sem þegar er feng-
in, hefir sýnt, og eftir því sem bindindismálinu hefir verið hrundið
áfram 5 síðustu árin, má óhætt gera ráð fyrir, að að 5 árum liðnum
verði þeir fáir meðal þjóðarinnar, sem þyki það samboðið virðingu
sinni, að reka jafn-ómannúðlega atvinnu og veiting áfengra drykkja er.
Þörfin á gistihúsum er venjulega höfð fyrir skálkaskjól, þegar
einhver sækir um áfengisveitingaleyfi, og sé því synjað, er gisti-
húsinu að sjálfsögðu lokað um leið, því ekki þykir það takandi í
mál, að halda opnu gistihúsi, nema hafa jafnhliða áfengisveitingu til
að bera kostnaðinn. Af þessu leiðir, að eftir því, sem brennivíns-
holunum fækkar í landinu, fækkar einnig gistihúsum að sama skapi.
Það þarf naumast að taka það fram, að gistihúsin eru alt of fá
hér á Iandi, og mega því alls ekki fækka; hin viðurkenda íslenzka
gestrisni hefir gert alt of marga húsráðendur að fórnarlömbum fyrir
þjóðina til þess, að ekki geti allir skynbærir menn fundið þörfina
á að fjölga gistihúsunum. Hins vegar er sú skoðun meir og meir
að ryðja sér til rúms, að áfengisveitingastöðunum eigi að fækka. Það
sem því nú liggur fyrir, er að koma upp gistihúsurn, án áfengisveitinga.
Og hverjir eiga að gera það ?
Andmælendur bindindisins hafa svarið á reiðurn höndum: að það