Einingin - 01.09.1902, Blaðsíða 4
i6
Einingin.
4. blað.
óviðráðanlegra orsaka ekki geta sótt fundi; slíkir menn geta verið
og eru oft ágætir meðlimir fyrir því.
Kæru bræður og systur! Látum það eitt, að sækja fundi, vera
vora fyrstu og síðustu skyldu, til uppfyllingar hinu fagra bindindis-
heiti, sem vér öll höfum unnið, og þá mun veturinn, sem nú fer í
hönd, verða góður vetur, framfarasæll fyrir stúkurnar, ánægjulegur
fyrir starfsmenn þeirra, heillaríkur fyrir velferð Reglunnar, og oss
öllum til sóma, sem tökum þátt í bindindisstarfinu. Munum, að það
er fyrsta skilyrðið fyrir velferð stúknanna, að sækja hvern fund á
réttum tíma. Gerum það sjálf, og fáum aðra til að gera það með
oss; þá mun veturinn, sem nú fer í hönd, verða góður vetur.
JVIakleg verðlaun.
(Sönn saga.)
Unglingspiltur, tæplega tvítugur, fór í »útreiðartúr« með húsbónda sín-
um, sem er einn af meiriháttar bæjarbúum, á sunnudag í sumar.
Þegar þeir höfðu riðið »fyrsta sprettinn*, fóru þeir af baki til að gefa
hestunum hlé til að blása. Tekur húsbóndinn þá upp ferðapelann, að
fornum sið, sýpur á og réttir piltinum, sem réttir pelann frá sér aftur, án
þess að taka úr honum tappann.
»Viltu ekki vera með?« spyr húsbóndinn.
»Nei,« svaraði pilturinn.
»Þú hefir gott af að fá þér ofurlítið bragð svona í útreiðartúr.*
»Eg geri það aldrei, hvernig sem á stendur.«
»Ertu þá bindindismaður eða Good-Templar?«
»Nei«, svaraði pilturinn, »en ég hef aldrei bragðað áfengi, og ætla mér
ekki að gera það.«
»Það er fallegur ásetningur,« mælti húsbóndinn með aðdáun, tekur upp
budduna, réttir piltinum tíu króna seðil og segir: »Þú átt að eiga þetta
fyrir það að þú þáðir ekki staupið.«
Oefað eru til margir húsbændur, sem kunna að meta það að verðleikum
við hjú sín og verkamenn, ef þeir eru reglusamir, en fá dæmi munu vera
jafn-ljós og þetta, enda mun tilfinningin fyrir reglusemi og bindindi vera
misnæm, jafnt hjá yfirboðnum sem undirgefnum.
Einingin kemur út einusinni á mánuði og kostar 60 aura árgangurinn,
12 blöð. Gjalddagi fyrir 1. desember.
Borgun fyrir blaðið ber að senda til umdæmisritara br. Lárusar Thor-
arensens á Akureyri.
Prentuð hjá Oddi Björnssyni.