Fríkirkjan - 01.06.1900, Side 14

Fríkirkjan - 01.06.1900, Side 14
94 5; Jesús Kristur hetur sagt: „mitt ríki er ekki af þessum heimi." Kirkjan er ríki lians. Nú ér kirkjan, sém þjóð- kirkja að eins „ein skúífa í féhirzlu ríkisiris“ eða- „hin kristilega hlið ríkisins", og er hrin þá um leið orðin „af þessum heimi.“ 6. Riki Jesri Krists er ríki sannleikans. Einn merkur guð- fræðingur hefur sagt, að „aldrei nema til tjóns“ ha,fl sverð- inu verið heitt til að styðja að sigri sannleikans. En sverðið táknar hið veraldlega vald yfir höfuð, eða ríkisvaldið. 7. Fríkirkja ber vott um trri á hinu rétta konung kirkjúnn- ar. Þjóðkirkjan þorir ekki að treysta lionum einum; hrin þorir ekki að sleppa hendi hins .máttuga jarðneska kon- ungs og halda sér eingöngu við hina almáttugu hönd Jesú Krists. 8. Hin sanna kirkja er brriður Krists, og það á að vera hug- sjón hvers safnaðar. En þjóðkirkjan stendur í svo nánu sambandi við ríkið, að því hefur réttilega verið líkt við sambandið milli manns og konu. 9. Þeir söfnuðir, sem guði hafa verið þóknanlegastir, hafa án efa verið hinir fyrstu kristnu söfnuðir á postula og písl- arvættistímanum. En þeir voru allir fríkjrkjusöfnuðir. 10. Sagan sýnir, að kirkjan spilltist mjög eptir að hrin varð ríkiskirkja. Yér hljótum að sogja, að hver sá maður, sem eigi lætur sannfærast við að athuga þessar tíu sannanir, sem hér eru taldar, hann skelli skolleyrunum við röddu sannleikans, hvort sem honum er það sjálfrátt eða ósjálfrátt. Vér treystum því að maður sá, sem fyrstur vakti þessa spurningu, sé ekki svo nauðuglega staddur, svo „blindaður áf fordómum fyrri alda,“ að hann geti ekki séð sannleikann í þessu máli. Hins viijum vér ekki til geta, að hann vilji ekki sjá sannleikann og kannast við hann. Að vísu hefur hann ætlað þetta andinælendum sínum í öðru máli; en það leikum vér ekki eptir.

x

Fríkirkjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.