Alþýðublað Hafnarfjarðar - 14.01.1950, Side 1
Kosningaskrifstofa z i lKxrAnKlriA
Alþýðuflokksins £ ilDVO UDICIO
í Hafnarfirði
er í Alþýðuhúsinu, á sama stað og áður Sími 9799 Skrifstofan er opin frú * Hafnarfjarðar
kl. 10 árdegis til 10 síðd. IX.. árg. Hafnarfirði 14. fanúar 1950 2. tölublað
Bæjarmálaþáttur VI.
HÖFNIN
Ekki verður sagt um Sjálfstæðis-
flokkinn í Hafnarfirði að honum sé
alls varnað. En þegar hann einstaka
sinnum álpast til að fylgja góðu
máli sést hann gjarnan ekki fyrir
og veður áfram flaumósa og liugs-
unarlítið.
Þannig hefir það verið í hafnar-
málinu. Það kom í hlut flokksins,
meðan hann enn hafði meirihluta-
aðstöðu hér í bæjarstjórn, 1922—’23,
að undirbúa málið, en sá undirbún-
ingur varð með þeim hætti, að ekki
einu sinni þeir sjálfir treystust til
að notfæra sér hann, en var af
þeirra hálfu ekkert í málinu gert,
frá því er þessum undirbúningi
lauk og þar til þeir hrökkluðust frá
völdum í bæjarstjórn 1926.
Þegar Alþýðuflokkurinn tók þá
við stjórn bæjar- og hafnarmálanna
lét hann það verða sitt fyrsta verk
að endurskoða áætlanir þær er fyrir
hendi voru og mælingar er gerðar
höfðu verið, og komst fljótlega að
þeirri niðurstöðu að varlegast
rnyndi að treysta hvorugu og taka
málið fyrir á ný, frá rótum. Var það
gert, og kom þá í ljós að miklum
mun erfiðra var við að fást bygg-
ingu hafnargarða, en menn áður
höfðu gert sér grein fyrir, og kostn-
aðarsamara. Var þá snúið sér að
byggingu nýrrar liafskipabryggju,
sem var mjög aðkallandi mál, til
aukningar leguplássi og til af-
greiðslu. Minni hlutinn í bæjar-
stjórn varð þá auðvitað andvígur
bryggjubyggingunni, en sem betur
fór var þó ekki um það skeytt og
bryggjan byggð, og síðar vel búin
að vélknúnum lyftitækjum, og
sennilega betur en nokkur önn-
ur bryggja á landinu, og gekk því
afgreiðsla öll hér betur en \úðast
annarsstaðar. Hefði það verið illa
farið, ef minni lilutinn í bæjarstjórn
hefði þá fengið að ráða, og vísast
að hann vilji nú sem minnst um
það tala.
A árunum milli 1930 og 1940 var
fjárhagur, bæði útgerðarfyrirtækj-
anna og almennings svo þröngur,
að ekkert viðlit var að leggja út í
svo kostnaðarsamt fyrirtæki eins og
byggingu hafnargarða. Var sýnilegt
að ekki mundu útgerðarfyrírtækiu
fá undir þessum kostnaði risið, þar
sem þau á þessu tímabili gátu ekki
greitt venjuleg gjöld til hafnarinn-
ar, heldur urðu að fá verulegan
hluta þeirra eftirgefinn. Á almenn-
ing var ekki heldur unnt að leggja
þessi gjöld, eins og á stóð, og lán
voru ekki fáanleg.
Var því ekki liafst að í bili, en
málið undirbúið með nýjum ýtar-
legum rannsóknum 1935 og ’36.
Undireins og úr fór að rakna var
samþykkt að hefjast handa um
byggingu hafnargarðsins norðan
fjarðar og var það verk liafið í árs-
byrjun 1941. Var síðan haldið á-
fram við mjög erfið skilyrði, þar
til garðurinn var orðinn talsvert á
þriðja hundrað metrar á lengd, og
farinn að mynda verulegt skjól við
bryggjurnar norðan fjarðar. — Kost-
aði sú garðbygging rúml. 3/2 milljón
kr. Árið 1947 var svo farið að undir-
búa byggingu hafnargarðs að sunn
anverðu, og er hann nú orðinn rúm-
lega 300 metrar á lengd og kostar
tæpar 2 millj. kr Hefir þá verið
varið til hafnargerðarinnar í þau 9
ár, sem liðin eru síðan bygging
hafnargarð. hófst, tæpar 5 M milj.
kr. — Bæjarsjóður hefir lagt fram
til þessara framkvæmda 1,8 milj. kr.
og mun það vera meira, en nokk-
urt annað bæjarfélag hefir lagt
höfn sinni til ,sem beint framlag.
Svnir það þann hug, sem heiri hluti
bæjarstjórnar hefir borið til hafnar-
gerðarinnar, og þá 'áherzlu, sem
lögð hefir verið á, að flýta fram-
kvæmdum eins og möguleikar hafa
frekast leyft. Ríkissjóður hefir lagt
fram nærri 2 miljónir króna, en 1,4
miljónir hafa verið teknar að láni,
og er það eina skuldin, sem á þessu
mikla mannvirki hvílir nú. Afgang-
inn hefir hafnarsjóður lagt fram
sjálfur. — Nú er suðurgarðurinn
kominn á 5 m. dýpi um stórstraums
fjöru, og þangað sem fasta botnin-
um sleppir, og leðjan byrjar fyrir
alvöru. Hingað til hefur verið til-
tiilulega auðvelt að byggja þennan
garð, en nú verður, úr þessu, að
horfast í augu við sömu erfiðleika,
og við var að eiga, við byggingu
norðurgarðsins. Hið gljúpa og
þykka leðjulag í botni hafnarinnar,
sem mjög lítið burðarþol hefir, ger-
ir það að verkum, að mjög dýrt
verður að ljúka því sem eftir er. —
En það verður að gerast, og verður
gert.
Þrátt fyrir það að úr bæjarsjóði
hefir verið lagt svo mikið fé fram
til hafnargerðarinnar, og þrátt fyrir
það, að aðeins 1,4 milj. kr. af heild-
arkostnaðinum hvíla nú á liafnar-
sjóði sem lán, er hann verður að
standa straum af, er það mjög á
mörkum að hafnarsjóður, með nú-
verandi tekjum sínum geti staðið
undir þessari upphæð, auk annarra
venjulegra rekstursútgjalda. Tekjur
hafnarinnar eru svo rýrar, vegna
þess að kappkostað hefir verið að
hafa hafnargjöldin ekki hærri en
tilsvarandi gjöld eru í lleykjavík,
enda eru þau það ekki, og sum
meira að segja lægri. Ilvarvetna út
um land þar sem lagt hefir verið í
kostnað vegna bryggju- og hafnar-
gerða, eru þessi gjöld aftur á móti
hærri og sumstaðar miklu hærri.
Alþýðuflokksmeirihlutanum í bæj-
arstjórn hefir þótt það skynsamlegt
að leitast við, af fremsta megni, að
íþyngja ekki útgerðarfyrirtækjum,
með hærri gjöldum en nauðsynlegt
hefir verið, samtímis því, sem leit-
ast hefir verið við, að skapa flot-
anum, bæði mótorbátum og togur-
um, bætt skilyrði innan hafnarinn-
ar.
Auk hafnargerðarinnar hefir
hafnarsjóður líka, á undanförnum
árum eytt stórfé í ýmislegt annað,
svo sem dýpkun hafnarinnar, kaup
á gömlu bryggjunni, sem íhaldið á
sinni tíð seldi í hendur einstakling-
um, en sem bærinn hefir nú eignast
á ný, eftir 20 ár, kaup á Svend-
borgareigninni, þar sem komið hef-
ir verið fyrir verbúðum og af-
greiðsluplássi fyrir bátana o. fl.
Allar þessar aðgerðir hafa orðið
til þess að fjöldi báta utan af landi
hefur getað fengið hér gott viðlegu-
pláss og fljóta afgreiðslu ,auk
heimabátanna, og hafa skapað hér
mikla atvinnu fyrir bæjarbúa. Hafa
þó stundum færri bátar getað feng-
ið hér viðlegupláss en vildu.
Má það út af fyrir sig teljast
merkilegur árangur af þessari við-
leitni, til að bæta höfnina og af-
greiðsluskilyrðin í henni, að bátar
skuli heldur vilja liafa bækistöð
sína hér, en í Keflavík eða Sand-
gerði, sem þó liggja miklu nær
fiskimiðunum. Talar það óneitan-
lega sínu máli um þann aðbúnað,
sem tekist hefir að skapa bátum
hér. —
Með áframhaldandi framkvæmd-
um verður sjálfsagt ekki hjá því
komist að hækka hafnargjöldin eitt-
Frh. á bls. 2