Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.04.1993, Side 1
Alþýðublað
Hafnarfjarðar
4. tbl. 51. árg. apríll993
Miðbæjarhúsið lækkað eftir viðræður bæjarstjóra og byggjenda
TVúi að almenn ánægja verði með niðurstöðuna
Segir Guðmundur Arni Stefánsson bæjarstjóri
„Ég vonast til að með þess-
um breytingum, lækkun á
húsinu, hafi verið komið til
móts við sem flest sjónarmið,
þannig að full sátt verði um
málið, og almenn ánægja
meðal bæjarbúa," sagði Guð-
mundur Árni Stefánsson bæj-
arstjóri á blaðamannafundi
sem haldinn var í vikunni um
miðbæjarkjarnann svokall-
aða, þ.e. Fjarðargötu 13-15.
Ásamt bæjarstjóra á fund-
inum voru forsvarsmenn Mið-
bæjar Hafnarfjarðar h.f., sem
reisa munu umrætt hús. í
kjölfar undirskriftasöfnunar í
bænum tók bæjarstjóri upp
viðræður við byggjendur, þar
sem leitað var leiða til að
sætta sjónarmið í máli þessu.
Og niðurstaðan er svohljóð-
andi:
Eftir viðræður bæjarstjór-
ans í Hafnarfirði og forsvars-
manna Miðbæjar Hafnarfjarð-
ar h.f. sem reisa munu
verslunar-þjónustu- og hótel-
byggingu í miðbæ Hafnar-
fjarðar, hefur orðið að niður-
stöðu að lækka "hótelturn"
hússins um eina hæð frá upp-
haflegum áformum.
Þetta leiðir til þess, að
vegghæð hússins verður sam-
kvæmt hinni nýju hönnun
21,05 metrar. Þannig hefur
vegghæð hússins lækkað um
8 (átta) metra frá fyrri hönn-
un að útliti hússins.
Þessi ákvörðun er tekin til
að sætta ólík sjónarmið um
hæð hússins, en eins og
kunnugt er skrifuðu rúmlega
fimm þúsund Hafnfirðingar
undir áskorun til bæjaryfir-
valda, þar sem óskað var eftir
því að "bæjaryfirvöld beiti
sér fyrir því að fyrirhuguð
stórbygging við Fjarðargötu
falli sem best að umhverfi
sínu og verði ekki hærri en
þau hús sem fyrir eru á mið-
bæjarsvæðinu". Jafnframt var
þess getið af forsvarsmönn-
um áskorunarinnar að ekki
væri deilt á framkvæmdina
sem slíka, né staðsetningu
hússins, heldur þvert á móti
væri áhugi á því að mannvirki
á borð við þetta risi í mið-
bænum. Til að koma til móts
við þessi sjónarmið hefur
byggingin verið lækkuð um
eina átta metra eins og fyrr
segir og er nú af svipaðri hæð
og hús Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar (vegghæð þess er
17,50) svo viðmiðun sé tekin í
miðbæ Hafnarfjarðar.
Þá hefur þess verið gætt
við hönnun hússins að það
falli vel að umhverfi sínu.
Með þessu telja byggingar-
aðilar og bæjarstjórinn í
Hafnarfirði, að mjög hafi ver-
ið komið til móts við sjónar-
mið þeirra Hafnfirðinga sem
rituðu nöfn sín á áðurnefnda
áskorun, auk þess sem haldið
er fast við grundvallaratriði
um þjónustu í húsinu, sem
bæjarbúar almennt er mjög á-
fram um að rísi í miðbæ.
Þannig eru einnig höfð í huga
viðhorf þeirra sem ekki rit-
uðu nöfn sín á áðurgreinda á-
skorun og lýstu þannig stuðn-
ingi sínum við framkvæmdina
eins og hún var upphaflega
ráðgerð.
í þessu ljósi er það von og
raunar trú aðila að almenn
sátt verði um framkvæmd
þessa og almennur áhugi bæj-
arbúa um uppbyggingu í mið-
bæ fái farsælan framgang.
Vissulega verður mannvirki á
borð við miðbæjarkjarnann
seint þannig úr garði gert að
öllum líki, en með lækkun
hússins án þess að að úr um-
fangi starfseminnar sé dregið,
er tekið á veigaþyngstu atrið-
um málsins og komið til móts
við sem flest sjónarmið.
Frekari deilur gagnast eng-
um í máli þessu, enda vand-
séð um hvað deila ætti, nú
þegar tekið hefur verið tillit
til helstu sjónarmiða.
Endanlegar bygginganefnd-
arteikningar af húsinu hafa
verið lagðar inn til bygginga-
fulltrúa og hafa verið teknar
til umfjöllunar í bygginga-
nefnd. Það er von aðila að um
þetta mál takist nú góð sam-
staða allra sem nærri koma
og að mannvirkið rísi hratt og
vel. Það er ætlun byggingar-
aðila.
Það er nljóst að umrædd
lækkun „hótelturns" leiðir að
sumu leiti til óhagkvæmari
rekstrareiningar fyrir byggj-
endur (herbergjum fækkar úr
50 í 40) og því munu aðilar
leita leiða til að auka við her-
bergjaframboð í nærliggjandi
byggingum teljist jjess þörf
þegar þar að kemur.
Samhliða framkvæmdum
við miðbæjarkjarnann af
hálfu Miðbæjar h.f. eru um-
fangsmiklar gatnagerðarfram-
kvæmdir í gangi af hálfu Hafn-
arfjarðarbæjar um þessar
mundir. Þær eru í samræmi
við miðbæjarskipulag og lögð
er áhersla á að flýta þeim eins
og kostur er og uppbygging
mannvirkja í miðbænum leyf-
ir. Það er markmið bæjaryfir-
valda að yfirbragð hins nýja
miðbæjar verði komið í var-
anlegt og glæsilegt horf á
þessu ári og hinu næsta, bæði
hvað varðar mannvirkjagerð
alla, gatnagerðarframkvæmd-
ir, malbikun, hellulögn, gerð
bifreiðastæða, fegrun og
gróðursetningu.