Jólakveðja frá K.F.U.M. - 24.12.1916, Side 8
6
JÓLAKVEÐJA FRÁ K. F. U. M.
Herbergin þrjú.
Les Lúk. 2. 25.-32.
í Jerúsalem var maður að nafni Símeon. Það
er venjulega talað um Símeon gamla. Þess er
reyndar ekki getið i hinni heilögu bók, að hann
hafi verið gamall, en það má lesa það milli lín-
anna. Árinu, sem er að hverfa, er oft líkt við
öldung og í kirkjunni fær gamla fólkið ott sjer-
staka kveðju á síðasta sunnudegi ársins, þá horf-
um vjer á Símeon, hinn gamla mann, og Önnu,
hina aldurhnignu ekkju. Þau mæta oss við lok
ársins og barnið Jesús, sem heilsaði þeim, heils-
ar vinum sinum, bæði er gamalt ár kveður og
nýtt ár gengur í garð, já, allan ársins hring. Það
hefði aldrei verið minst á þenna öldung og
þessa ekkju, ef ekki hefði lagt birtu frá jóla-
barninu og sú birta Ijómað á andliti þeirra. En
Símeon tók barnið í fang sjer og lofaði Guð.
Þess vegna er talað um Símeon á hverju ári,
áður en öll jólaljós eru brunnin út.
Vjer skulum heimsækja Símeon. Hann átti
heima í Jerúsalem. Mjög líklegt, að hann hafi
verið fátækur, ef til vill oft einmana. Ætli hann
hafi ekki búið í fátæklegu herbergi? Þar hefur
liklega ekki verið mikið meira inni en rúmið
hans. Hann hefur víst ekki verið víða boðinn
og að líkindum farið á mis við margt. En hann
möglaði ekki, heldur hefur hann verið rólegur
og glaður, bros Ijek um varir hans. Það var eins
og hann byggi yfir einhverju leyndarmáli, og
það var líka svo. Öllum var vel við gamla mann-
inn. Börnin þar í nágrenninu þektu hann, altaf
talaði hann svo bliðlega við þau, altaf heilsuðu
þau honum, það borgaði sig líka, því að hann
svaraði þeim altaf brosandi.
Maður þessi var rjeltlálur. Enginn hafði ástæðu
til þess að kvarta undan honum. Ekki kom hon-
um til hugar að tala illa um aðra og þegar hann
heyrði fólk tala óvarlega um náungann, þá varð
Símeon svo alvarlegur á svipinn, svo að fólkið
sá þann kost vænstan að hætla slíku tali. Hjálp-
fús var hann, boðinn og búinn til þess að rjetta
bróðurhönd. Oft sögðu nágrannarnir, er eilthvað
erfitt kom fyrir: »Ættum við ekki að tala um
þetta við hann Símeon?« Til hans fór unga
fólkið og leitaði ráða og mörgum ungum pilti
gaf hann holl ráð og ávalt tók hann málstað
æskulýðsins og kinkaði kolli af ánægju, er hann
heyrði um framfarir unga mannsins og gæfu
hinnar hjartagóðu yngismeyjar.
En af hverju var hann þannig? Það var þvi
að • þakka að hann var maður guðrœkinn. Fólk
heyrði oft gamla manninn tala við sjálfan sig:
»Bið róleg, sála min, gleym eigi velgjörðum
Drottins. Hann krýnir þig náð og miskun«. Með
þessum og fleiri orðum talaði hann við sjálfan
sig og aðra. Þegar sorg sótti vini hans heim, þá
kom hann til þeirra og huggaði þá með þvi að
benda þeim á fyrirhejtin úr hinni heilögu bók.
Þjóð sína elskaði hann og vænti bjartra daga
henni til handa, það var sólskin í hjarta hans
og það endurspeglaðist á ásjónu hans. Guðrækni
hans var ekki aðeins venja og orðin tóm. Hann
vissi, að hið bezta var fram undan, honum
hafði verið birt það, að hann skyldi ekki dauð-
ann sjá, fyr en hann hefði sjeð Drottins smurða.
Þessi vissa gerði hvern dag bjartan og hann
kærði sig ekket um að skifta á herberginu sínu
við skraullega höll. Guð var ásamt englum sin-
um inni í hinni litlu stofu.
Enn er víða gamalt fólk. Jeg sje lítil herbergi,
þar vantar margt af heimsins gæðuni, þar er
stundum fátækt og ekki sterk heilsa. En þar geta
sömu auðæfin átt heima og hjá gamla mann-
inum í Jerúsalem. Þar Ijóma einnig fyrirheitin,
og ef hugarfar Símeons fær að komast þar að, þá
munu fagrar dygðir koma í ljós. Þar þarf ekki
að kvarta undan slirðum geðsmunum, þar er
ekki talað illa um aðra, en menn vita að þarna
er gamall maður og gömul kona, sem ekki þola
að hlusta á slíkt. Það er óhælt að treysta þeim,
og hægt að fá þar leiðbeiningar, því að þau hafa
tekið próf í lifsins skóla. Þar er- guðhræðsla
samfara nægjusemi og huggun veitist með dýr-
legum fyrirheitum. Það vanlar opt sól í herberg-
ið, en hinn trúaði öldungur sjer annað sólskin,
hann sjer sólargeisla, er biblían er opnuð og
sungnir eru hinir yndislegu sálmar um Betle-
hemsbarnið og hinn líðandi írelsara.
Höfum vjer ekki öll fengið hið sama fyrirheit
og Símeon? Enginn á að degja fgr en liann
liefur mœtt Drotlins smurða.
En þessi vissa hefur enn hin sömu áhrif eins
og hún hafði á Símeon. Það er jólabirta inni i
því herbergí, þar sem slíkir vinir Drottins búa.
En frá þessu herbergi liggur leiðin inn i ann-
að herbergi, inn í Droltins hús. Símeon þráði
helgidóminn. Hann kom þangað ekki af forvitni,