Liljan - 01.11.1916, Page 1
ÍSLENZlíT SKÁTABLAÐ
S--- ^
ÚTGEFENDUlt: VÆRINGJAR K. F. A U. M.
í 11. TBL. ^ NÓVEMBER 15)1(1 j
Karlmennska.
Það er víst ósk allra drengja að vera karlmann-
legir. Ilaíið þið aldrei tekið eftir þeim drengjum,
sem lála bera mikið á sér, þegar þeir leika sér með
öðrum drengjum, á þann hátt, að krydda mál silt
með sem fleslum blótsyrðum og ósiðlegum orðum?
Það er auðséð að þeir íinna til sín af því, livað þeir
eru karlmannlegir, snáðarnir þeir(H) Það er víst eng-
inn Væringi það erkillón, að hann haldi það lýsa
karlmennsku og hugrekki. IJeir eru brjóslumkennan-
legir drengirnir þeir, sem þekkja svo lítið til sannrar
karlmennsku, að þeir lialda að hún sé innifalin í
því að reykja, blóta, viðhaía ósiðleg orð og hæða
Guð og hans boð. Það eru til slíkir drengir hér í bæ,
því er nú ver og miður. Eitt af höfuðeinkennum á
sönnum, góðum og miklum inanni er það, að hann
kann að gæta tungu sinnar. Til er gull og gnægð af
perlum, en liið dýrmætasta þing eru vilrar varir,
segir Guðsorð. En það segir líka: Varir heimskingj-