Ljósvakinn - 01.10.1922, Qupperneq 3

Ljósvakinn - 01.10.1922, Qupperneq 3
LJÓSVAKINN 3 Það var eins og hann væri að spila á dýpstu strengi hjartna þeirra alla þá stund sem hann lék á þessa gömlu, ó- hreinu og útötuðu fiðlu. Loks hætti hann og þegar þeir voru aftur búnir að losa sig undan áhrifa- valdi fiðlutónanna, þá fóru þeir að keppa um fiðluna: »50 gineur«, »60«, »70«, »80«, svona keptust þeir á að bjóða hver öðrum betur. Og endirinn varð sá, að mikli fiðlarinn sjálfur keypti hana fyrir 100 gineur. Og að kvöldi hins sama dags kom saman múgur manna, inargar þúsundir og voru svo hrifnir, að þeir héldu niðri í sér and- anum. Svona voru tónarnir áhrifamiklir, sem framleiddir voru úr þessu gömlu, óhreinu útötuðu lítilsmetnu fiðlu. Hún var einskis metin þangað til hún komst í hendur meistarans. Eng- inn þekti gildi hennar, fyr en hönd meistarans var búin að birta hið fá- gæta gildi hennar og hina fögru tóna, sem leyndust í henni. Hann setti þetta vafasama hljóðfæri í sitt réttmæla heið- urssæti frammi fyrir þúsundum áheyr- enda. Má ég svo fá leyfi til að hvísla þér í eyra og spyrja hvort einn eða annar af oss hafi virt sinn innra mann að vett- ugi? Vér höfum boðið 5 gineur, þó að hann gilti óteljandi sinnum meira, þeg- ar litið er til hans, sem manninn hefir skapað. Metum eigi of lagt handaverk Guðs, meislaraverk Guðs| Fiðlan þurfti þess við að rykið væri strokið af lienni og hún væri stilt að nýju, til þess að hún gæti látið óma sina beztu tóna. Skyldum vér ekki hver um sig fela þetta verk guðs, sem fá- gætast er allra hljóðfæra, í hönd meíst- arans? Það er óhjákvæmilegl að gera breytingar, þegar meislarinn tekur við því, en þegar hann hefið fullkomnað verk sitt í oss, þá mun út af lifi voru streyma hinir dýrlegustu tónar Guðs sjálfs, sem laða munu alla, sem heyra þá til hans, sem er mcistari meistaranna. Það var líka svar. Af sérstökum ástæðum var Spurgeon sagt frá því, að kona sem var stórorð mjög, ætlaði að gefa honum ráðningu, þegar hún hitti hann næst. »Já«, sagði Spurgenn, »en við skul- um nú vera tvö ein um það«. Skömmu síðar gekk hann fram hjá húsi hennar. Hún rauk óðar að hon- um og sendi honum tóninn. Spurgeon brosti og sagði: »Jú, eg þakka yðnr fyrir, mér líður ágætlega og eg vona, að yður liði vel lika«. Hún tók þá aftur að ausa skömmum yfir hann, en Spurgeon svaraði bros- andi: »Já, það lítur ineira en svo út fyrir heilirigningu; eg held það sé best að eg hraði mér af slað«. »Æ«, sagði kvenvargurinn, »hann er heyrnarlaus eins og rekabútur; það er gagnslaust að vera að skamma hann«. Hrós og last, Það verður oftast sú raunin á, að vér erum of naumir á að hrósa og upp- örfa, en ósparir á kuldalegar aðfinslur og last, að þvi er kemur til barna og unglinga. Margar erfiðar tilraunir, sem börn á sig leggja, verða til ónýtis; finst

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.