Ljósvakinn - 01.10.1922, Page 5

Ljósvakinn - 01.10.1922, Page 5
L J 0 S V A K I N N 5 »Er það svo?« sagði fiú Lawrance og brá við. »Já, satt er það«. »Hvað á eg þá að gera? Eg verð beinlínis að flytja héðan«. »Jæ-ja, viltu heyra tillögu mína?« sagði frú Brooks. »Eg veit ekki hvernig þér kann að litast á liana; en nú vill svo vel til, að eg hefi stóra stofu í hús- inu mínu, sem eg nota litið — hversu litist þér á að fá hana?« »Ó, eg þakka yður, frú Brooks. En hvað þefta er fallegt af yður. Alt af er- uð þér að reyna að hjálpa mér eitt- hvað«. »Eg á engar þakkir skilið, en ánægju- legt þætti mér, ef þér vilduð búa hjá mér«. »Og það verður mér gleði að fara til yðar«, sagði frú Lawrance. »þér hefðuð ekki getað stungið upp á neinu, sem mér hefði geðjast betur«. »Hve nær rtiá eg búast við yður?« »Jafnskjótt sem eg er búin að koma húsmunum mínum til geymslu og hreinsa húsið. Eg hygg að eg geti verið búin að því á miðvikudagskvöldið eða á fimtudagskvöldið i síðasta lagi. Er það hentugt fyrir yður?« »Já, vissulega«, svaraði frú Brooks. Og þetla varð að ráði. Næslu tvo dagana gekk frú Lawrence um húsið sitt í þunguin hug, tók ofan málverkin, vafði saman gólfábreiðurnar, lagði postu- línið niður í kassa, svo að alt væri til, þegar þeir kæmu, er áttu að flytja hús- munina hennar burtu. Og þeir komu seint á miðvikudagskvöldið og fluttu alt U1 geymslustaðarins, og skildu hið fagra og kæra heimkynni eflir alault. Frú Lawrence gekk nú sorgbitin með tárin i augunum með Ödu sinni um öll herbergi í síðasta sinni; þar hafði hún lifað svo marga glaða daga og svo gekk hún í kringum litla blómgarðinn; blóm- in þar voru enn einu sinni tarin að spretta út. Loks gekk bún að aðaldyr- um hússins og læsli þeim hóglega, nærri þvf með lolningu; hún fann að um leið og liún lokaði þeim, þá aflæsti liún líka afmældu skeiði af liðinni æfi sinni, skeiði, sem var full afóblandinni hamingju og aldrei kæmi nú aftur, og jafnframt fann hún, að hún var að ganga út í nýja reynslu, er hlaðin væri allskonar erfiðleikum og óleysanlegum ráðgátum. Hún kom nú til hins nýja bústaðar síns þreytt og linuggin. En þar biðu hennar hinar hlýjustu viðtökur. Eldur- inn blossaði á arninum og frú Brooks vísaði henni lil sætis á slóran hvílu- beð með mestu ástúð, og á borð var borinn liinn ljúffengasti kvöldverður. Henni fanst frú Brooks vera ástúðlegri nú en nokkru sinni áður, ef það gæti annars átt sér stað; hún gerði alt, sem L hennar valdi stóð, til þess að gera þessum tveimur leigjendum sínum vist- ina sem þægilegasta og sælasta. Jafnvel fyrlr dyrnm: Að loknum kvöldverði gekk frú Brooks inn í slofuna og mælti: »Nú langar mig til að biðja þig að koma með mér eina eða tvær minútur. Nú er þú ætlar að dvelja hjá mér um stundarsakir, þá ætla ég að segja þér í trúnaði frá leyndarmáli, sem mjög fáir vita«. Og um leið og hún sagði þetta brá raunasvip á andliti frúarinnar sem annars var svo bjart og brosandi. Eftir þeim svip hafði frú Lawrenve aldrei tekið áður. Frú Brooks leiddi hana nú að litlu herbergi að húsabaki. Pegar hún opnaði

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.