Ljósvakinn - 01.03.1925, Page 3

Ljósvakinn - 01.03.1925, Page 3
LJÓSVAKINN 19 En þegar hann syndgaði, varð hann fráskilinn því, að neyta af lífs trjenu og varð dauðanum undirorpinn ekki ein- ungis tímanlegum heldur og eilífum dauða. Ódauðleikann, sem manninum var heitinn með því skilyrði, að hann væri hlýðinn, misti hann við fall sitt. Adam gat ekki eftirlátið niðjum sínum það í arf, sem hann hafði ekki sjálfur; og engin von hefði verið fyrir hið fallna mannkyn, hetði ekki Guð með fórn sonar sfns gert ódauðleikann mögulegan fyrir það. »Syndin kom í heiminn fyrir einn mann og dauðinn fyrir syndina, og þann- ig er dauðinn runninn til allra manna, því að allir hafa syndgað». Róm. 5, 12. Hinn eini, sem lofaði Adam lifi í óhlýðni, var hinn mikli afvegaleiðari og þessi oi ð höggormsins við Evu: »Vissu- lega munuð þið ekki deyja«, var hin fyrsta prjedikun, sem haldin hefir verið um ódauðleika sálarinnar. Og þrátt fyrir það, eru þessi orð, sem ekki hafa við neitt annað að styðjast en trúgirni við Satan, endurtekin á prjedikunarstól- um kristninnar, og flestir menn eru jafn auðtrúa á þau, og vorir iyrstu foreldrar voru. Pessi dómur Guðs; »Sú sál, sem syndgar, hún skal deyja«, Esek. 18, 20 er útskýrður þannig: Sú sál, sem synd- gar hún skal ekki deyja, heldur lifa eillflega. Rað er varla hægt annað en standa höggdofa yflr þeirri heimsku mannanna, að þeir skuli heldur vilja trúa orðum Satans en oiðum Guðs. Hefði maðurinn eftir fallið, haft frjáls- an aðgang að lífsins trje, þá myndi hann hafa lifað eiliflega, og þannig hefði syndin verið gerð eilíf. En Kerúb- ar með sveipanda sverði voru settir til að »geyma vegarins að lifsins trje« 1. Mós, 3, 24. og enginn af Adams ætt hefir fengið leyfi til að stiga yfir þessar hömlur og neyta af hinum lífgefandi ávexti. Ress vegna er enginn ódauðlegur synd- ari til. »Laun syndarinna eru dauði, en náð- argjöf Guðs er eilífl lff fyrir samfjelagið við Krist Jesú, Drottinn vorn« Róm. 6,23. Lifið er arfur hinna ijettlátu, en dauðinn er arfur óguðlegra. Móses sagði við ísrael: »Sjá jeg hefi í dag lagt fyrir þig lif og heill, dauða og óheill«, 5. Mós. 30,15. Allir hl|óta að geta sjeð, að Móses er ekki að tala hjer um hinn tímanlega dauða, hann hefir fráleitt búist við því, að ísraelsmenn myndu fríast við hann, nei, það, sem hann talar um, er hinn annar dauði, sem er gagnstæður hinu eilífa lífi. Marga fleiri rilningarstaði mætti tilfæra, er sýna mjög ljóslega að sálin getur dáið. Davið segir: »Drottinn varðveitir alla þá, er elska hann, en eyðir öllum óguðlegum. Sálm, 145,20. Hvernig ætti hann að eyða þeim ef þeir gætu ekki dáið? Hjer er aftur átt við eilífan en ekki tímanlegan dauða, því að hinir guðhræddu eru einnig undir- orpnir tíinanlegum dauða. Ennfremur segir Davíð: »Þú hefir hastað á heið- ingjana, tortímt hinum óguðlegu, afmáð nafn þeirra um aldur og æfi« Sálm, 9, 6. Regar Droltinn, fyrir munn spá- mannsins Malakíasar' talar um afdrif hinna óguðlegu, segir hann: »Dagurinn, sem kemur, mun kveykja í þeim, segir Drottinn hersveitanna, svo að hvorki mun verða eftir af þeim rót nje kvislur*. Mal. 4,1. Þetta kemur mjög í bága við þá trú mannanna að sálin sje ódauðleg. Jesús segir: »Sá sem óhlýðnast synin- um, skal ekki sjá lífið . . . .« Jóh. 3,36. Laun syndarinnar er dauði, og hinir óhlýðnu munu að lokum hreppa dauða en ekki lif.

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.