Alþýðublaðið - 19.05.1923, Page 2
t
Frá Alþingi.
í’átækralögin.
Að tilfcilutun Alþýðuflokksins
hafa tvisvar verið samþyktar
þingsályktunartillögur til stjórn-
arinnar um að leggja fyrir þingið
breytingar á fátækralöguunm.
Stjórn Jóns Magnússonar gerði
ekkertíþessu. Enfyrirsiðasta þing
Iagði atvinnumálaráðherrann fram
frumvarp, sem fól í sér talsvert
víðtækar umbætur á lögunum.
T. d. skyldi það ekki talinn
sveitarstyrkur, sem vegna van-
heilinda eða slysa er veittur
manni eða konu, sem fyrír ómegð
hefir að sjá.
Veittur styrkur til manns eða
konu 65 ára eða eldri átti held-
ur ekki að teljast sveitarstyrkur.
Sveitfestitíminn átti eftir frum-
varpinu að vera 5 ár. En menn
byrjuðu að vinná sér sveit, þegar
þeir væru 2x árs að aldri.
I>etta frumvarp var lagt fram
í efrí deild, og fór það í alls-
herjarnefnd þeirrar deildar, en
þar réði Jón Magnússon rnestu.
Alt það, sem nýtilegt var í frv.,
feldi nefndin burt. Og býsna
kynlegar voru ástæður hennar,
en þær voru eitthvað á þessa
leið: Af því ekki er hægt að
bæta alt misrétti í fátækralög-
unum, þá er ekki vert að bæta
neitt úr því, sem nú er. Auðvit-
að eru þetta yfirskyns-ástæður.
Jón Magnússon er einn af höf-
undum núgildandi fátækralaga,
og honum finst líklega svo mikið
til um þetta verk sítt, að hann
getur ekki vitað, að við því sé
hróflað. Og svo er hann auðvit-
að andstæður því að veita nokk-
urn rétt þeim mönnum, sem
styrk þurfa að þiggja at sveitafé.
í neðri deild var gerð tilraun
til að færa trv. aftur í svipað
horf og hið upprunalega stjórn-
arfrumvarp. £n aflsherjárnefnd
neðri deildar (þar voru þeir Jón
Þorláksson og Magnús Gnð-
mundsson) lagðist á móti öllum
nýtilegum breytingum, og voru
allar breytingar til bóta feldar.
Var svo að lokum samþykt
nauðaómerkileg lareyting á fá-
tækralögunum. £n þáð er sú
breyting- ein, að í stað þess, að
nú er sveitfestistíminn eitt ár, þá
ALÞf SOSLA&Ið
verður hann 4 ár eftir hinum
nýsamþyktu lögum.
Alþýðuflokkurinn verður að
halda uppi látlausri baráttu um
breytingar á þessum mann-
skemdalögum, þar til viðunandi
umbætur fást.
Hrafn.
Ríkið á að sjá sómasamlega
lyrir sjúknm, hrnmum og
óverkfærum.
Frá hæjarstjörnar-
fundi 17. maí. <
Laxvetðin í Elliðaánnm.
Tilboð í ha2ia hötðu komið
frá þeim Pétri Ingimundarsyni,
Kristjáni Ó. Skagfjörð og Guðm.
J. Breiðfjörð í tvennu lagi, og
lagði fasteignanefhd til, að hinu
hærra þeirra væri tekið. Nam
það 6200 kr.
Sumarbústaðir.
Ólafur Friðriksson bar fram
tillögu um að fela fasteignanefnd
að semja skilyrði íyrir ieigu á
landi undir sumarbústaði út af
beiðnum, sem fasteignanefnd
höfðu borist, um slíklönd. Urðu
út at því allmiklar umræður.
Vildi tillögumaður koma betra
skipulagi á það, hvar sumarbú-
staðir væru reistir, og áleit, að
þegar þyrfti að gera gangskör
áð því. í sama streng tók Héð-
inn Valdimarsson. Borgarstjóri
taldi tormerki á því, að fast-
eignaneínd gæti komið þessu í
verk nægilega snemmindis. Pét-
ur Halldórsson vildi láta bæjar-
stjórn leita samninga við land-
eigendur i Mosfellssveit milli
Hámrahlíðar og sjávar um lör.d
undir sumarbústaði, þár sem
bæjarlandið myi di bráðlega reyn-
ast ónógt, og bar fram tillögu
um það. Niðurstaða varð sú, að
sámþyktar voru tillögur þeirra
Ólafs Friðrikssonar og Péturs
Halldórssonar.
Vatnsleiðslan nýja.
Til vatnsnefudar höfðu komið
sex tilboð um gröft á skurði j
undir vatnsleiðslupípur frá Tungu
og að Elliðaám, 6443 m. á lengd.
Háfði Tóni Þorlákssyni verið taiið
að athuga þau. Tilboðin voru
sem hér segir: Frá Kristni Sig-
urðssyni og Val..Eyjólfssyni 47
þús. kr., Páli Jónssyni og Erl.
Jónssyni 42400 kr., Sig. Jónssyni
og Hafliða Sæmundssyni 41805
kr., Sig Jónssyni Grettisgötu 20
40700 kr., verkamannafélaginu
>Dagsbrún< 38 þús. kr. og Jóni
B. Valfells og Tómasi Hallgríms-
syni 29900 kr. Hafði vatnsnefnd
samþykt að taka lægsta tiiboð-
inu gegn tryggingu þeirri, sern
áskilin hafði verið, 10 °/0 af fjár-
hæðinni. Ut af tiíboði þessu urðu
miklar umræður. Jón Baldvinsson .
spurðist fyrir um ýms atriði við-
vfkjandi tilboðum þessum, og
kom þá í ijós, að þeir, er lægsta
tilboðið höfðu gert, myndu ekki
geta staðið straum af verkiuu
nema með því móti, að verka-
menn tækju að sér að vinna
með svo naumu ákvæðisverði,
að fyrirsjáanlegt væri, að þeir
hefðu ekki upp úr því sem svar-
aði tímakaupi. Borgarstjóri kvaðst
og hafa verið mjög hikandi við
að taka þessu tilboði, en Jón
Þorláksson teldi eftir að hafa
enduiyfirfarið áætlanir sínar, að
tilbjóðendur myndu geta atgreitt
verkið. Var að heyra, sem meiri
hluti vatnsnefndar hefði þröngv-
að borgarstjóra að fallast á til-
boðið, þótt honum væri það
mjög ógeðfelt. Var það í fullu
samræmi við aðgerðir síðasta
fundar á undan, þegar meiri
hlutinn feldi samkomulagstillögur
borgarstjóra og Héðins Valdi-
marssonar um, að verkamönnum
skyldi trygt fult kaup í ákvæðis-
vinnu. Sýndu Alþýðuflokkstull-
trúarnir rækilega fram á, að
vatnsnefndin hetði þarna gengið
í þjónustu auðvaldsins gegn
verkalýðnum, og yrði það að
vera á ábyrgð vatnsnefndar, ef
vandræði hlytust af. Meiri hlut-
inn svaraði yfirleitt engu til, en
lét borgarstjóra einan um vörn-
ina, og átti hann þó óhægt um
vik, sem áður er lýst, og meiri-
hlutamaðurinn úr vatnsnefndinni
(B Ó), er á fundi var auk borg-
arstjóra, upplauk ekki munni
sínum borgarstjóra til stuðnings,
þótt hans hefði átt að vera
vörnin. Þriðji maður nefndarinn-