Ljósvakinn - 01.01.1926, Qupperneq 11

Ljósvakinn - 01.01.1926, Qupperneq 11
L J Ó S V A Iv I N N 11 ar radíóbyljganna, þannig er oss einnig ó- mögulegl að útlista þetta samband við himininn; en hinn kristni veit þó að það er í raun og veru svo. Hann íinnur dag- lega lil þess, að bann hefir samband við bimininn, og honum finst hann sjá stig- ann frá himnum lil jarðarinnar, og Guðs engla ganga upp og ofan! Þella vekur ólýsanlega öruggleika-tilfinn- ingu hjá sönnu Guðs barni. Og með djörf- ung og hugrekki skundar hinn trúaði að takmarkinu þar til hann hefir náð því og stendur meðal hins frelsaða skara á Zíonfjalli, þar, sem hann þá sjálfur tekur þátt í söngvum himinsins, sem hann hér niðri einungis skildi gegnum »eilífa lagið«. L. M. Vor eina von á vonleysistíma. Aldrei hefir ástand heimsins vakið meiri alhygli, eða haft jafnmörg alvarleg og mikilvæg úrlausnarefni fram að bjóða, eins og einmitt á vorum dögum. Enginn vakandi og hugsandi maður getur annað en látið sér til hjarta ganga þá angist og ráðaleysi, sem sérstaklega auðkcnnir liið almeuna ástand í heiminum. Hvernig á að skilja þelta alt? Hvað ætli morgundagur- inn haíi í för með sér? Vér stöndum aug- liti til auglils frammi fyrir þessum alvöru- spurningum. En hvar er svör að fá við þessum spurningum? Hver getur ráðið fyrir oss gátur tímans? Og um frarn alt, hvaðan kemur hjálpin, hiálpin til lausnar úr þess- ari óreiðu og botnlausa djúpi ranglætis, sem mennirnir eru nú að sökkva í? Hvaðan kemur sú hjálp? Maður getur fyllilega fallist á það, sem Wilson Bandaríkjaforseti sagði þegar áður en hann sæi, hve fyllilega það frumvarp mistækist, sem hann hafði samið heimin- um til bjargar. »Þessir ringulreiðar tímar« sagði hann »vekja svo yfirgripsmiklar spurningar, að ekkert mannlegt hyggjuvit getur skilið þær til hlítar. Eg held, að hver maður mundi ganga af vitinu, ef hann tryði ekki á for- sjón Guðs. Heimurinn yrði þá eins og Völ- undarhús, þar sem engan leiðarþráð væri að linna. Væri engin æðri handleiðsla til, þá myndum við örvílnasl út af árangri mannlegra ráðagerða«. Nú er það salt að fleslir trúa ekki þrált fyrir alt á neina »æðri handleiðslu« eða forsjón. Og það viiðist rætast á þeiin nú fremur en nokkru sinni áður, að þeir séu »án vonar í heiminum«. Maður ætti að hafa gilda ástæðu til að spyrja hvort þeir, sem alment eru álilnir bezt fallnir til að ráðgast um ástandið og bjargarleiðina út úr því — hversu duglegir stjórnvitringar eða sérfræðingar sem það kunna að vera — hvort þeir í raun og veru tryðu eða gæfu sig á vald æðri handleiðslu forsjón- arinnar, svo að hún nái sínu gildi í mann- legum ráðsályktunum þeirra. t*að er ekki útlit fyrir það. Nei. Og þetta er ógæfan mikla, — þetta, að menn ráða ráðum sínum án Guðs og meta ráð hans að engu. Þess vegna komast vilrustu menn heimsins svo skamt á veg með ráðum sínum (Esek. 7, 26). Þess vegna standa þjóðirnar, »ráða- lausar«, þess vegna ætla þær að gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því, sem koma mun yfir heimsbygðina, eins og frelsarinn sjálfur segir fyrir að ástandið muni verða undir heimslokin (Lúk. 21, 24, 26). »Tilfinningin fyrir því hversu alt er á hverfanda hveli, læsir sig mann frá manni«, segir Söderblom erkibiskup í prédikun.

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.