Ljósvakinn - 01.01.1926, Side 15
LJÓSVARÍNN
15
konungur sannleikans lifir og rikir að
eilífu.
t*egar Stefán fyrsti píslarvottur frum-
safnaðarins var grýllur saklaus til bana,
þá fórnaði hann lífi sínu fyrir málefni
sannleikans og réttlætisins. Stefán dó, en
sannleikurinn lifði áfram og skaut nýjum
frjóöngum, þar á meðal í bjarla ungmennis-
ins, Sáls. Hvað Sál, er siðar nefndi sig
Pál, gerði til að halda orði sannleikans
við lýði, vitnar öll sú mergð píslarvotta,
sem innsigluðu það með blóði sínu.
Mennirnir geta haldið áfram í fávizku,
blindni, hatri og þvermóðsku að kasta
spjótum sínum að bjaigi sannleikans og
ata það auri, og öflugar mótbárur geta
skollið á því, en það verður eigi molað,
því að bjargið er Jesús Kristur — bjargið
aldanna. —
Sönn er lýsing Jesaja spámanns á lífi
og tilhneigingum mannkynsins: »En hinir
óguðlegu eru sem ólgusjór, því að hann
getur ekki verið kyr og bylgjur hans róta
upp aur og leðju«. (Jes. 57, 20). Aldrei
hefir jafnmiklu af auri og leðju verið
varpað á Guðs sannleiksorð og á vorum
dögum. En þrátt fyrir það fer sannleiks-
boðskapurinn, hjálpræðisboðskapurinn,
sigurför um heiminn. Pað er undarlegt, að
mennirnir skuli ekki vera búnir að læra
þann mikla sannleika, að »vér megnum
ekkert gegn sannleikanum, heldur fyrir
sannleikann«. (2. Kor. 13, 8).
Menn eru að leita, elta uppi, tala, og
rita um svo margt og mikið, en hans, sem
»er vegurinn, sannleikurinn og lífið«, leita
menn ekki, sækja ekki til hans. Menn tala
háll um frelsi og hverskonar lausn; menn
skapa sér nýjar hugsanir og ný áform í þá
átt og þó er formálinn fyrir frelsi og lausn
jafn gamall og jörðin sjálf. »Og þér skuluð
þekkja sannleikann og sannleikurinn mun
gera yður frjálsa«. (Jóh. 8, 32). Menn fæl-
ast sannleikann, og því meiri, skýrari og
persónulegri sem hann er, því erfiðari virð-
ist hann vera hugum manna til viðtöku.
Menn slanda við lind sannleikans, sem
fellur í breiðum kristalskærum styrkjandi
straumi til allra án manngreinarálits. En
allur fjöldinn dregur sig i hlé í stað þess
aö setja bikarinn undir og drekka af hjart-
ans lyst.
Fáir eru þeir, sem þora að ganga fram
i Ijósbjarma sannleiksorðsins, alls hins
rannsakandi Guðs orðs. »Hjer stend pg«,
mælti Lúlher óskelfdur, þegar honum var
steínt fyrir þingheim páfans og keisarans
í Worms. Á þann pall hefðu fáir þorað
að slíga. Lúther stóð á grundvelli sann-
leiksorðsins, þeim er aldrei svíkur. »Eg
get ekki annað. Guð hjálpi mér«, sagði
hann ennfremur, og hjálpin kom. Kraftur
Lúthers var fólginn í sannleiksorðinu.
Sannleiksorðið er orð Guðs. Og þetta orð
varð lifandi i hinum eingetna syni föðurs-
ins, og það er hið sama orð, sem frelsar
mannanna börn og dæmir þau fyrir dóm-
slóli Guðs.
Kæri lesari. Stendur þú á grundvelli
sannleikans? Hefir þú fesl akkeri trúar
þinnar og lífs i honum, sem er vegurinn,
sannleikurinn og lífið? Enn er stull tíð
eftir lil þess er alt það, sem stendar nú,
leysist sundur og ferst, en sannleikurinn
og hver sá, sem hefir bygt musteri lifs
sins á honum, mun standa frá eilífð til
eilifðar.
»Iíaup þú sannleika og sel hann ekki«.
Orðskv. 23, 23. S. R.
Pað gleður sérhvern kristinn mann að heyra
um hina miklu útbreiðslu Ritningarinnar á vor-
um dögum. T. d. gaf hið ameriska biblíufclag
út 3,865,101 Bibliur, Nýjatestamenti og hluta af
Biblíunni árið 1920.
Ef vér hefðum skýrslur frá »Hinu breska og
erlenda biblíufélagi« í London fyrir sama ár,
þá mundum vér sennilega fá að sjá aðra eins
háa tölu eða hærri.
slUskýring orðs þíns upplýsir«. Sálm. 119, 130.