Ljósvakinn - 01.01.1926, Qupperneq 19

Ljósvakinn - 01.01.1926, Qupperneq 19
LJÓSVAKINN 19 fíinn með Quði. Það eru augnablik í lífi voru, þegar oss er hin brýnasta nauðsyn að vera einum með Guði. Ekkert annað getur veitt oss þann kraft og þá hugsvölun, sem vér þörfnumst svo mjög — ekkert nema heilagt samfélag við vorn himneska föður í ein- rúmi. Það koma augnablik í lífi voru, þegar oss verður það á, að víkja af vegi skyldunnar og réttlætisins og vér göngum í myrkri án nokkurrar biameskrar leið- beiningar, ef vér látum hjálíða að nálægja oss Guði. Heilög og dýrmæt álirif frá himnum streyma inn í sál vora, þegar vér erum aleinir með Gnði; nærvera annara manna virðist draga úr þessum áhrifum. Jafnvel nærvera góðs vinar, gelur eins og varpað skugga milli hinnar leitandi sálar og Guðs. og að nokkru leyti hindrað blessun And- ans. Guð er ætíð fús að gefa þeim anda sinn, sem leita hans, hvort það er á morgni, miðjum degi eða á binum þöglu stundum nælurinnar. Hann ber kærleiksríka um- önnun fyrir oss, á hvaða tíma sem er. Þegar hjartað er hlaðið sorgum og áhyggj- um lífsins, þegar sálin er niðurbeygð af hinum þungu byrðum jarðlífsins og vér stynjum af þreytu og sársauka, þá er ekkert sem jafnskjótt getur dregið sviðann úr og veitt oss hugsvölun, eins og þetla, að flýja til vors himneska föður; því hann lætur aldrei hjá líða, að Iclta byrðina á binu rauna- mædda hjarta. Þegar hin grátnu augu hafa átt erfitt með að greina veg skyldunnar, þegar veg- farandinn hefir farið villur vegar í dimm- unni, hversu oft hefir þá ekki birt fyrir augunum og hlýðnað í hjartanu við heilagt samtal við Jesúm í einrúmi! Ó, þið, sem erfiðið og mæðist undir þungum byrðum, þið, sem hafið við sjúk- dóm og ýmiskonar böl að búa, þið, sem hafið orðið hart úti í baráttu lífsins, hafið ekki af sjálfum ykkur þá miklu blessun, sem fæst fyrir samfélag við Guð í einrúmi með innilegri trúarbæn og heilögum hug- leiðingum! Ev. S. Yinátta og gestrisni. Það var orðið dimt þegar Jesús fór framhjá kalkklettunum við lækinn Kedron. Hann sá refina vera að skriða inn í greni sín — heimili sín. Hann gekk undir trján- um í víngörðum Júdeu og heyrði fuglana kvaka og syngja kveldsöngva sína og sá þá fljúga til hreiðra sinna þar sem ungar þeirra lágu. Þegar hin sýrlenska sól seig til viðar, var hann vanur að leita sjer að skjóli í eyðimörkinni eða þá að hann gekk til Olíufjallsins. Mannsins sonur átti ekkert heimili, hafði hvergi höfði sínu að að halla. Hversu inndælt það hlýtur að hafa verið fyrir hinn þreytla vegfaranda að mæta hinum hjartanlegu viðtökum á hinu gest- risna heimili i Betaníul Á þessu heimili stjórnaði Marta, hraust og dugleg stúlka, sem mjög mikið var varið í. Marta! fmynd þeirra, sem bera hita og þunga dagsins og gera sitt lil að gleðja og hugga aðra án þess að hugsa um sjálfa sig. Hún hefir breitt ilm í kringum sig og óskandi væii að margir hennar líkar væru til, því að enn eru margar einmana sálir til, sem þrá opnar dyr og hlý hjörtu. María, yngri systirin, hafði valdið Mörtu sárrar sorgar með því að fara út á villu- götur, en var nú snúin við fyrir kraft Jesú frá Nasaret. Hún kom heim hrein af syndum sínum, læknuð af sjúkdómi sínum, yndislegri en nokkru sinni fyr með brennandi elsku til frelsara síns. María, sú fyrsta til að smyrja konunginn, sú sið- asta sem yfirgaf krossinn, sú fyrsta við gröfina hinn dýrðlega upprisumorgun —

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.