Ljósvakinn - 01.01.1928, Page 8

Ljósvakinn - 01.01.1928, Page 8
8 LJÓSVAKINN að flnna nú. Því það er nokkuö, sem oft er ekki á mannafæri að ókveða. Við vilj- um að eins beina albygli að því, að slíkt lögmál hefir alt af verið til, og það mun standa svo lengi sem réttlæti og ranglæti er hugsanlegt. Nútíminn sýnir að þessi lög eru við liði. Á morgun munu þau koma í ljós, með því að hegna þeim, sem rang- lætið fremur i dag. Baráttan fyrir lífinu. í útskýringu sinni yfir bænina: »gef oss í dag vort daglegt brauð«, telur Luther einnig föt, hús og heimili, sem tilheyrandi þessari bæn. Og hann gerir það léttilega, því alt þetta tilheyrir vorum daglegu þörf- am. En — þvi miðurl hversu margir eru það ekki, sem vanta bæði brauð og föt, hús og heimili. Hugsunin og meðvitundin um alt hið óverðskuldaða (við ætlum ekki að tala um sjálfskaparvítin) böl, sem fólk liður svo mörgum þúsundum skiflir, jafn- vel i menningarlöndunum, mitt á meðal þeirra er nægtir hafa af öllu, ætti að vekja meðaumkvun hjá manni, og þrá eftir þeim degi er eymd í hverri mynd, sem um er að ræða, verður ekki lengur til. Baráttan fyrir lífinu er ekki að eins i hrörlegu hreisunum, þar sem fólk hefir að eins til hnifs og skeiðar. Vegna samvinnu nútimans er baráttu þessari breylt yfir á stærri félög, sem heyja hana svo fyrir allra augum. Hernaður kostar æflnlega fjárfram- lög, og sama er að segja um baráttuna fyrir hinu daglega brauði eins og barist er nú oftast nær. Þetta munu allir kann- ast við að einhverju leyti. Vér höfum hér hjá oss enska hag- skýrslu, sem sýnir greiniiega fram á um- ræddan kostnaö. Skýrslan nær írá 1912— 1926 og er fyrir Stórbretaland. Eins og hægt er að sannfærast um af töflunni hafa tapast þessi 15 ár: 434,520,- 000 virkir dagar. Pað er sama sem að 1 milj. manna gengu vinnulausir i 434 virka daga eða hér um bil 17 mán., eða um Ár Tala verkf. Tala manna er tóku þátt i verkf. Tala dagsverka sem töpuðust. 1912 834 1,232,000 40,890,000 1913 1459 479,000 9,800,000 1914 972 326,000 9,800,000 1915 672 401,000 2,950,000 1916 532 235,000 2,450,000 1917 730 575,000 5,650,000 1918 1165 923,000 5,880,000 1919 1352 2,401,000 34,970 000 1920 1607 1,779,000 26,570,000 1921 763 1,770,000 85,870,000 1922 576 512,000 19 850,000 1923 628 343,000 10,670,000 1924 710 558,000 8,420,000 1925 604 402,000 7,970,000 1926 313 2,721,000 162,780,000 1000 gengu vinnulausir í 1500 ár. Reikni maður kaup til jafnaðar 7 kr. á dag, er tapið þessa 434,520,000 virka dag rúmlega 3041 milj. krónur. Við þelta tap bætist svo það sem aldrei er hægt að reikna með tölum, en það er óregla á daglaunum, sem öll þjóðin bíður skaða við. í Bandarikjunum i Ameríku hafa verið 28,861 verkföll sfðastliðin 12 ár, sem er álitið að hafi fært verkalýðnum tap sem nemi 7517 milj. króna, þar við bætist svo tap atvinnuveitenda sem og það tap, sem almenningur í heild sinni biður og er á- ællað 44,000 milj. krónur. Samtals 51,517 milj. tap fyrir þjóðina. Tölur þessar gefa nokkurnvegin rétta hugmynd um ástandið i heiminum þar sem svipað hagar til og i þessum löndum, sem hér hefir verið getið um. Og þær gefa þá lika hugmynd um að hér er alvarlegt ástand um að ræða á þessu sviði yfirleitt. Þær vitna glögglega um æsinguna milli stéttanna í heiminum, nokkuð, sem þrátt fyrir ýmsar tilraunir til að jafna og semja milli, verður alt af meira af og verra viðureignar. Hvað segir þetta okkur? En alt þetta, þó leiðinlegt sé til að vita að svona gengur það til í heiminum, sýn- ir okkur ijóslega, að orð Guðs segir satt

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.