Ljósvakinn - 01.01.1928, Side 9

Ljósvakinn - 01.01.1928, Side 9
LJÓSVAKINN 9 einnig á þessu sviði. Það er það, sem mest hefir að segja við að rannsaka þessi viðhorf — frá þeim sjónhól, sem við vilj- um sérstaklega horfa á það. Engum getur dulist, að þessi stöðuga æsing, sem á sér stað meðal stétta þjóðfélagsins, þessi deila milli verkalýðs og vinnuveitenda, hlýtur að baka viðkomandi stórtjón, sem og þeim er á nokkurn hátt eru í sambandi við at- vinnureksturinn. Líka getur engum dulist, sem hugsar nánar um þelta atriði, að slíkt framferði hlýtur að auka andúð og óvin- áttu milli hlutaðeigandi og verða að sið- ustu að þeim skilvegg milli manna, sem alls ekki ætti að eiga sér stað í kristnu Iandi. Að deila um það hvar sökin sé eiginlega hefir minna í sér — þar eigum við ef til vill öll hlut i. t*að sem mest um vert er að taka eftir, er að ástandið — eins og það er f raun og veru, er nákvæm- lega eins og spámenn Rilningarinnar hafa lýst því á þjóðfélagssviðinu í heiminum rétt fyrir endurkomu Frelsarans. Það eru einkum tveir þessara spádóma, sem við viljum dvelja ofurlítið við nú. Fyrst skulum við alhuga það sem postul- inn Páll segir i 2. Tím. 3, 1.—5., þar sem hann vekur athygli manna á, að gæta að því, að á hinum síðustu dögum muni koma erfiðleikar (»en vita skaltu þetta, að á síðustu dögum munu koma erfiðar tíð- ir«). Því næst dregur hann upp ljósa, en óhuggulega mynd af ástandinu, þegar sá tími komi. Hann segir meðal annars, að fólk muni vera eigingjarnt (sérgóðir), fé- gjarnt, hrokafullir (vanheilagir) kærleiks- lausir, ósáttfúsir (óhaldinorðir), grimmir, ekki elskandi það sem golt er. í*að lætur að likum, að á tima þeim, sem slíkt ástand er ríkjandi hljóti að vera erfiðar tíðir (vandræða ástand). Tökum t. d. til athugunar fyrsta einkennið: eigingirni. Menn hafa að vísu alt af siðan syndafallið verið eigingjarnir að eðli, en á síðustu dögum skyldi þetta einkenni vera svo áber- andi, að hægt væri að þekkja tímann fyrir það. Hinn eigin- gjarni hugsar að eins um sjálf- an sig en minna um aðra. Eig- in hagsmunir er takmark hans í lífinu. Þetta leiöir aftur af sér, að sá sem valdið hefir í þann svipinu, reynir að beita því til þess að hafa fé af öðrum og jafnvel kúa þá. Peningagræðgi yrði líklega almenn. Eigingirni með hroka og grimd mundi leiða til óréttlætis gagnvart öðrum. Hefir ekki æfinlega verið eitthvað af sliku? Hefir það ekki endað í sorg og basli fyrir þeim sem undirokaðir hafa verið, og orðið að vinna baki brotnu til þess að hafa það allra nauðsynlegasta, en aðrir hafa tekið ágóðann af vinnu þeirra? Og Guð sem er réltlálur hefir séð þetta alt saman. Tökum þessar athuganir með oss, og lítum annan rithöfund, sem talar knúður af Heilögum anda, Jakob, þjón Guðs og Drottins vors Jesú Krists. Hann hefir al- vöruorð að mæla til hinna eigingjörnu, sem undiroka aðra meðbræður sína: »Heyrið nú þér auðmenn, grátið og

x

Ljósvakinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.