Ljósvakinn - 01.01.1928, Síða 22

Ljósvakinn - 01.01.1928, Síða 22
22 LJÓSVAKINN Dies Solis = Dagur Sólarinnar = Sunnudagur Dies Lunæ = Dagur Mánans Dies Martis = Dagur Mars Dies Merkurii = Dagur Merkurs Dies Jovis = Dagur Jupiters Dies Veneris = Dagur Venus Dies Saturni = Dagur Saturn (Týrsdagur, Óðinsdagur o. s. frv. var nefnt hér áður en kaþólska kirkjan breytti nöfnunum i það sem nú er notað bér á landi.) Við sjáum af þessu að Sunnudagurinn (dagur sólarinnar) var fyrsti dagur vik- unnar, mánadagur annar o. s. frv. Saturns- dagur sjöundi dagurinn (á ensku enn i dag Saturday). Laugardagurinn og ekki sunnudagurinn er hinn sjöundi dagur. Margir álita sunnudaginn vera sama og hvildardaginn. En þetta eru tveir sérstakir dagar. Sunnudagur hefir hinn fyrsti dagur vikunnar verið nefndur af heiðingjum, eins og annar dagur vikunnar hehr verið nefndur mánadagur. Þannig er sunnudag- urinn alls ekki hvíldardagur Drottins vors. Hinn sjöundi dagur er hvildardagur eftir boðinu, eins og guðspjallamaðurinn Lúkas tekur fram: Og hann (Jósef frá Arimatea) tók hann (líkama Jesú) ofan og sveipaði hann í linklæði og lagði hann i gröf, höggna út i stein, sem enginn hafði áður legið í. Og það var aðfangadagur (undir- búningsdagur, sá dagur sem Frelsarinn var krossfestur) og hvildardagurinn fór i hönd, og konur þær, sem komið höfðu með Jesú frá Galileu, fylgdu eftir og sáu gröfina og hvernig líkami hans var lagður, og þær sneru aftur og bjuggu út ilmjurtir og smyrsl. Og hvildardaginn héldu þœr kijrru fgrir, samkvœmt boðorðinu, En í aftureld- ing fyrsta dag vikunnur komu þær til graf- arinnar með iimjurtirnar, er þær höfðu út búið. Lúk. 23, 53.-56.; 24, 1. í þessum ritningarstað er talað Ijóslega um þrjá daga vikunnar, nefnilega 1) dag- inn, sem Kristur var krossfestur (föstudag) 2) næsta dag á eftir (hvildardaginn eftir boðorinu) og 3) hinn fyrsta dag vikunnar, = Mánudagur = Priójudagur = Tyrsdagur = Miövikudagur = Óóinsdagur = Fimtudagur = Pórsdagur = Föstudagur = Freyjudagur = Laugardagur þegar Kristur reis upp frá dauðum. Hvild- ardagurinn, samkvæmt boðorðinu, þ. e. hinn sjöundi dagar, er þá næstur á undan fyrsta degi vikunnar, eða þeim degi er við nú alment köllum sunnudag. Auðvitað get- um við hvílt ifkamann á einhverjum öðrum degi. En hvilst i Drottni getum við ekki, nema hlýða honum og halda hinn sjöunda dag, sem er hvildardagur Drottins Guðs vors Jesú Krists, samkvæmt boðorðinu. Sá dagur er kominn beina leið frá aldingarð- inum Eden. Hann er hvildardagur, sam- kvæmt þeim lögum, hvers yfirtroðsla er synd (1 Joh. 3, 4.) Þaö lögmál, sem Jakob talar um þegar hann segir: »því þótt ein- hver héldi alt lögmálið, en hrasaði i einu atriði, þá er hann orðinn sekur við öll boðorð þess«. Jak. 2, 10. Hvildardagurinn er því hinn sjöundi dagur. Hve lengi mun hvildardagur Drottins verða haldinn? Hvildardagurinn stendur svo lengi sem þær staðreyndir, sem hann er grundvallaður á breytast ekki. Þessi staðreynd er, að skaparinn framleiddi alla hluti á sex dögum, og hann hvildist þann sjöunda, að hann svo blessaði hann, og síðan helgaði hinn sjöunda dag, eða ákvað að hann skyldi æfinlega haldinn helgur. Skipunina um þetta selti hann í miðju siðferðislögmálsins, sem eru hin tíu boð- orð, og þau eru óumbreytanleg. 1 Jes. 66, 22. 23. finnum við þessi þýð- ingarmiklu orð: Því eins og hinn nýi him- inn og hin nýja jörð, sem ég skapa, mun standa stöðug fyrir mínu augliti, segir Drottinn, eins mun afsprengi yðar og nafn standa stöðugt. Og á mánuði hverjum tunglkomudaginn, og viku hverri, hvildar- daginn, skal alt hold koma til að falla fram fyrir mér, segir Drottinn. Hvildardagurinn mun því standa um eilffð. Hann er eins og nokkurskonar brú, sem nær frá hinni töpuðu Paradfs til hinnar aftur unnu Paradfsar.

x

Ljósvakinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.