Ljósvakinn - 01.01.1928, Qupperneq 23

Ljósvakinn - 01.01.1928, Qupperneq 23
LJÓSVAKINN 23 Hvað verður úr óeirðunum í Kína? Eftir I. H. Evans, sem á heima í Shaoghai í Kina. Síðan Yuan Shi Kai leið, heíir Kína verið heimsótt af innanlandsófriði innan hinna ýmsu héraða. Hver höndin hefir verið upp á móti annari að heita má — þangað til þjóðin var orðin svo illa til reika, að á- standið hefði ekki verið verra þó hungurs- neyð hefði geysað í landinu. Yuan Shi Kai á upptökin að ástandinu eins og það er, með því að hann skipaði herforingja yfir hvert fylki. Stuttu eftir lát hans fóru þessir valdstjórar að stríða um yfirráðin sin á milli. Síðan hefir ekki verið flokkadráttur um neitt stórmál i þarfir þjóðarinnar, heldur hefir alt snúist um persónur, sem hafa reynt að ná .undir sig völdum og auði. Hinir svo kölluðu þjóðernissinnar, sem komu frá héraðinu i kring um Iíanton, berjast nú móti norðlægari héruðum, og þegar þetta er skrifað eru þeir i afturhaldi frá Peking. Pessi flokkur hefir orðtækin: »Kína fyrir Kínverja«. »Niður með keisara- sinna«. »Útrýmið útlendingum«. Flokkur þessi reis upphaflega gegn þjóðþinginu i Peking, gegn stjórnarskránni o. s. frv. Sun Yat Sen og hinn aldraði Dr. Wu og fleiri settu aðalbækistöð sina i héraðinu kring um Kanton og tókust á hendur að mæla gegn öllu því sem norðlægari fylkin gerðu, hvort heldur það voru innanrfkis- eða utanrikismál. Peir söfnuðu að sér her, unnu orustur og töpuðu orustum, unnu lítið á í málum en eyddu miklu i þetta brask. Fyrir utan stefnuskrá þeirra f stjórn- málum, hafa þjóðernissinnar yfirráð yfir hernum er um er að gera í þessum lands- hlutum, sem þeir eru f, og berjast nú gegn öllum, sem aðrar stjórnmálaskoðanir hafa, og voga sér að mótmæla stefnu þeirra. Flokkur þessi er aðallega hermenn, sem berjast hver gegn öðrum um völdin, og hver uppreisn hefir vitanlega tap og eyð- ingu í för með sér. Því meira sem herinn dreifist frá orustusvæðinu því minna er að byggja á hinar ýmsu deildir hans. Eftir heimsókn sína til Moskva, þar sem hann virtist vera á bandi Sovjetstjórnar- innar, sneri Dr. Sun aftur til Kíua og út- breiddi stjórnmálaskoðanir sínar þar eftir því sem heilsa hans leyfði. Rússar voru með honum og sýndu honum hvernig hann ætti að blása að horgarastyrjöldinni og vekja hatur og deilur. Eftir dauða hans gerðu Kinverjar af undirróðri Rússa, Dr. Sun að þjóðhetju. Pað var gefin út bók, sem sagt er að sé útdráttur úr kenning- um hans. Hún átti að vera rituð fyrir hina óuppfræddu, og það er sagt að hún sé svo einföld og kröftuglega rituð að hún skiljist jafnvel af ólæsum rnanni, þó hann heyri hana ekki nema einu sinni upplesna. Gif- uryrði eru notað til þess að útskýra hvers- vegna Kfnverjum beri að hata alla útlend- inga, jafnvel kristindóminn og alt sem út- lendingar hafi á boðstólum. Bók Dr. Suns hefir verið gefin út svo milj. eintaka skift- ir, og þó er eftirspurnin svo mikil að varla er hægt að fullnægja henni. Hvar sem þessi bók er lesin kemur hatur gegn út- lendingum, og hugir fólks gagnvat verzl- unarerindrekum og trúboðum snúast til hins verra og þelta hefir gengið svo langt að hætta er nú á ferðum fyrir alla útlend- inga, sem voga sér að ferðast gegnum landið. Kínverjar eru ekki helmskíngjar. Af innihaldi þessarar bókar eins og lika öðrum æsingaritum, fá Iíinverjar þá skoð- un inn hjá sér, að alt sem útlendingar eiga og hafa með höndum, sé fengið bein- línis með því að svikja og undiroka Kin- verja á einhvern hátt. Pessar bækur draga

x

Ljósvakinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.