Kennarinn - 01.05.1900, Blaðsíða 2

Kennarinn - 01.05.1900, Blaðsíða 2
—102—t FYRSTA NÓTTIN MÍN f LONDON. Að liaustlagi, sjóhrakinn og sárjireyttur, með óhug og einhverja einstæðings-tilíinning, kom ég til liinnar miklu borgar, Lonclon. Ég hafði lesið ymislegt um f>á borg og hina mörgu íbíia hennar. Og nú var ég persónulega kominn inn á Jienna sögustað,—og ]>að frá hinu kvrláta íslandi, sem með sönnu má segja um, að líkist barni, sem mist liafi í æsku mál og heyrn, J>egar borið «r saman við hávaða og ham- farir annara landa og einkum stórborga heimsins. En því fylgir pá líka vonandi sú bót, að mállausa barnið mitt meða! pjóðanna,—ís- laml,—haíi elcki numið margt af hinu illa, sein utan íslands tíðkast. En sleppum J>ví. Eg, hið íslenzka sveitabarn, var nú J>arna niðnrkominn, fjarri öllum sem ég J>ekti—kominn norðan af íslenzkum lioiðum, suður iil hinnar mestu töfraborgar heitnsins nú á dögum. Jú, ég J>ekti einn mann í London, velmetinn prest biskupakirkjunn- ar. J>essum manni sendi ég hraðskeyti frá Edinburg, J>egar eg var að fara þaðan, en gleymdi að setja nafn mitt undir, svo ég gat bú- ist við, að viðtakandi gæti ekkert i J>ví skilið. Þegar á leiðinni varð ég var við ]>essa yíirsjón mína, að gleyma undirskriftinni, sem aftilr orstikaðist af ]>ví, að ég var að missa af járnbrautarLst, sem ég æll- aði með til J.ondon. En J>essi góði og guðhræcldi prestur, kom til móts við mig á brautarstöð, sem er utan borgar, og nálega bar mig á höndum sér heim til sín, J>ar sem hann b/r í einni fagurri undirborg. Hús lians er líkara liöll en heimili eins prests. Um kveldið, J>egar hann fylgdi mér sjálfur til lierbergis, eftir óteljandi velgjörðir og sameiginlega bænagjörð, fórum við að tala um fjarlægð mína að heiman og að þetta væri mín fyrsta næturgisting í London. Sagði hann mér J>á J>«ssa sögu, sem ég liofi einnig síðun lesið á prenti: ‘*Eg gleymi víst aldrei hinni fyrstu nótt minni f London. Eg var jafn ókunnugur öllu liör sem sveitadrengur, sem aldrei liafði séð l>org. Eg koin til höfuðstaðarins, til að vinna fyrir liinu fyrsta kaup- gjaldi; í einu liinu stærsta starfshúsi borgarinnar,-—að sögn, einu liinu stærsta af slíkum húsum í heirainum. Hiifuðmaðurinn var millióna- eigandi, sem lifði einungis til að græöa fé hér megin grafarinnur, en átti engann hlut og enga von í auðlegð liiininsins. Peningahagnaður réði J>ar öllu. Kristilegt siðalögmál J>yddi J>ar ekkert. Ein reglan var að allir ungir, ógiftir menn skyldu sofa í byggingu

x

Kennarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kennarinn
https://timarit.is/publication/487

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.