Kennarinn - 01.05.1905, Síða 4

Kennarinn - 01.05.1905, Síða 4
36 KENNARINN Hver er lex. í dag? Hvaöan er hún tekin? Hver er minnist. ? Hver lex.; sem læra á? fLex. 28 í B. St.j. SYNDAFALUÐ. Lex. tekin úr 1. Mós. 2. og 3. kap. Minnist.: Lauu syndarinnar cr daudi. Lex., sem læra á: Óhlýdni er orsök allra meina okkar. SAGAN SÖGÐ. Paradís.—Langt austur í Eden plantaöi guö fagran aldingarö. IJar spruttu mörg inndæl tré. í miðjum garðinum var 1 í f s i n s t r é og s ki 1 n i ng s-t r é ð g ó ð s og i 1 1 s. Og á rann frá Eden, sem vökvaði garðinn. Forbodni ávöxturinn.—í þennan garð setti guð Adam. Og átti hann að yrkja garðinn og gæta hans. Og guð sagði við hann: „Þú mátt eta af öllum trjánum í aldingarðinutn; en af skilningstrénu góðs og ills máttu ekki eta. Á þeim degi, sem þú etur af því, skaltu deyja.“ Freistingin.—Djöfullinn, sem hafði verið einn af hinum góðu englum guðs, en. óhlýðnaðist guði og varð vondur, vildi koma .mönnunum til þess að líkjast sér og veröa óhlýðnir og vondir. Hann kemur inn í aldingarðinn eins og höggormur, eins og eitt af dýrun- um, sem maðurinn átti að drotna yfir. Hann fer til Evu og segir: „Er það satt? Hefir guð bannað ykkur að eta af trjánum í aldin- garðinum?" Eva svaraði: „Við megum eta af öllum trjánutn, nema skilningstrénu. Guð bannaði okkur að eta af því. Og hann sagði: Ef þið etið af því, þá deyið þið.“ Höggormurinn segir þá: „Þið deyið ekki, heldur veit guð, að ef þið etið af trénu, þá opnast augu ykkar og þið verðið eins og hann og þekkið gott og ilt.‘‘ Fallid.—Þá fer Evu að lítast vel á tréð og hana langar i ávöxt þess. Svo tekur hún af ávextinum og etur. Og hún gefur líka manni sínum og hann etur. Hegningin.—Um kvöldið heyra þau rödd guðs í garðinunt, verða hrædd og fela sig. Drottinn kallar á Adam og segir: „Hvar e.rt þú?“ Adam svarar: „Eg heyrði rödd þína, varð hræddur og faldi mig.“ Drottinn spyr: „Hefir þú etið af skilningstrénu?“ Ad- am svarar: „Konan, sem þú gafst mér, gaf mér af trénu og eg át.“ t>á segir drottinn við Evu: „Hvað hefir þú gert?“ Eva svarar: „Höggormurinn tældi mig, svo að eg át.“—Drottinn lýsir svo bölv- an yfir böggorminum og segir við hann, að afkvæmi konunnar skuli merja höfuð hans, en hann merja hæl þess. En við Adam og Evu segir hann, að þjáningar og mótlæti, mæða og stríð komi yfir þau vegna syndar þeirra Rekin út.—Síðan rekur hann þau út úr garðinum og l^tur engla gæta hans og verja veginti að lífsins tré. KÆRU BÖRN! Saga þessi segir ykkur frá því, hvernig synd-

x

Kennarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarinn
https://timarit.is/publication/487

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.