Máni - 21.02.1917, Qupperneq 8
22
M Á N I
Tilkynning1.
Sökura þess að einhverjir óhlutvandir kjaftaskúmar,
sem aldrei vilja frið á jörðu, hafa logið því upp og
látið berast út um borgina, og jafnvel víðar, að Erfða-
Ijóðaverksmiðjan okkar nafnanna væri hætt að starfa,
og lokuð öllum almenningi, þá neyðumst við til að
lýsa því opinberlega yfir, að þetta er sú mesta hauga-
lýgi, og að verksmiðjan hefir aldrei starfað með jafn-
miklu fjöri og andlegum tilþrifum, eins og nú, þrátt
fyrir alla dýrtíð, sem gerir þó öllum verksmiðju-
iðnaði örðugt fyrir.
Jafnframt því að hrekja þessi rakalausu ósannindi,
leyfum við okkur að birta eftirfarandi verðlista öllum
lifandi til eftirbreytni.
I.
Fyrir grafskriftir með góðu mannorði:
a; Yflr óþokkamenni, bófa, lygara, svikara og aðra
mannhunda, 10 kr. hvert vísuorð.
b. Pyrir miðlungsmenn, íábjána og þess háttar fólk,
8 kr. vísuorðið.
c. Fyrir vanaða og volaða, eður alla þá, er guðs ríki
eiga að erfa, 5 kr. vísuorðið.
d. Fyrir gamlar vinnukonur, er aldrei hafa verið við
karlmann kendar, 1 kr. vísuorðið.
Um aðrar grafskriftir í flokki þessum, fer eftir því
sem á stendur í hvert skifti.
II.
Fyrir grafskriftir almenns efnis, hálfur taxti.
III.
Fyrir grafskriftir þær, sem herma rétt frá viðkomanda,
tökum við tímakaup — 25 aura á klst., — en við
viijum vekja athygli á því, að það borgar sig síður.
NB. Erfiljód við hvers manns hæfi altaf fyrirliggj-
andi.
Erfiljóðaverksmiðjan „Leirgerður".
Virðingarf.
Við Nafnarnir — báðir.
Hertog'ans þættir af Hilleröd.
Er hertoginn )>populær«?
Hans var lauslega getið í síðasta blaði Máua, í
sambandi við ferlegar sýnir hans nýverið. Mun það
þá ekki hafa verið upplýst að hann á sér mikla sögu
hér á landi, svo að vænta má að hann verði höfuð-
persónan í þjóðsögum vorum er þær verða gefnar út
á næstu öld, og ekki ólíklegt að kýmileikaskáldum
þess tíma verði matur úr því.
Nú hefir sem sé komið fram saga hertogans í ekki
minna en 52 þáttum. Eins og allir sjá er ofurefli að
birta hana alla, en nokkra úrvalsþætti mætti birta, ef
alment er um það beðið, og reynir hér á, hversu
„populær" hertoginn er. Að öðru leyti fær lands-
skjalasafnið handritið.
Fyrstu þættirnir — frá uppvaxtarárunum — eru væg-
ast sagt „ekki fyrir börn“, og konur myndu lesa þá
með hönd fyrir auga og milli fingra sér. Það, sem
fyrst er prentandi er frá því er úr honum tognaði.
Þá var hann sendur með grænsápu í dollu á eftir
heimagriðkunni inn í Laugar. Hann náði henni í
holtinu fyrir innan Rauðará og...............svo sá
hann gálga þar niður við sjóinn og óskaði sér að
verða eins langur, hengdi hann sig þar upp á eyrun-
um og tognaði þá fjandi mikið á honum. Var hann
síðan áþekkur gíraffa-fola með „patent“-asnaeyru.
Seinna var hann lengi í förum og eru bæjarmenn
ekki alls ókunnir ýmsum æfintýrum hans frá þeim
tímum, sem birst hafa við og við í ýmsum vísinda-
menskugreinum eins og rúsínur í blóðmörsiðri.
í Lissabon sá hann fyrir heimsstyrjöldina —er hann
var þar — ferlegar kanónur á torgi einu, og varð svo
skelkaður, að fötin grautfúnuðu af honum. Síðar sá
hann á götu hér ljósmyndavél, sem minti hann á þær
í Lissabon —en stríðið kom nú samt.
Hertoginn gengur með þá „fixide", að allur heim-
urinn snúist um gíraflafolann — sjálfan sig, og verður
þess víða vart. Þegar hann kom úr sigiingunum,
saddur lífsreynslu, sendi hann þjóðinni hertogalegt
„ávarp“, er það með kostum og kynjum, og mun
lengi í minnum haft. En það, sem skyldi hér af hon-
um sagt, og lýsir mikilmensku hans ágætlega, er það,
að eitt sinn fréttist að fólksflutningaskipið „Norge“
,hefði strandað við alþekt sker i Atlantshafi, Rocky
Hill. Það sker þekti hertoginn þá ekki, og lét þá
senda út þau skilaboð, að tvö skip hefði rekist á, og
til þess að árétta þetta betur, fékk hann lánaða prent-
svertu næsta dag, til þess að bera það út, að s.s.
Rocky Hill hefði sokkið og engin mannbjörg orðið.
— Hertoganum er þannig lýst, að hann gengur i
kavíu, sem vanfærar konur bera, kemur þá önnur
löppin fram undan kavíunni, og er það tappatogari,
en hin stendur afturundan, og er það gamalt loft-
skeyti, sem hann gleymdi einu sinni að senda og