Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.07.1899, Page 3

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.07.1899, Page 3
nnmiTninimiiin .«•• ........ i i i i liiniiilmlitifiiTf ítí i é 111111i1 i'ifiri i ii i)i 1111 i iTmriTi lllilllllililililHHHilnTi'ilHTTílTKiTTIilHllllilTIilTITiiliinHÍl' Þú, sem ert í sveit í sumar, lifðu þannig og komdu þjer þannig, að bæði húsbændurnir og hjúin kvíði fyrir þegar þú ferð og sjái eptir þjer og árni þjer góðs, þegar þú kveður. Þetta er sú eina sorg, sem þú mátt vera valdur að á því heirn- ili sem þú ert. — Vertu trúr, r'óskur, iðitin, hlýðiim. „ Vertu hlýðinn landslogum og bcejarregh/m!“ Þessu, sem stóö í júníblaðinu hafa pcir gleyrnt hjer um daginn, sem höfðu það upp úr fávíslegri stundaránægju, að baka foreldrum sfnum fjártjón, sjálfum sjer smán, og hryggð þeim, er vilja þeim bezt. — Blett hafa þeir sarnt ekki getað sett á fjelagið með þessu, því þcir hafa verið aðvaraðir, en þeir hafa sýnt, að þcir eru ekki meðal fyrirmyndardrengja þess enn, en jeg treysti því, að þeir geti orðið það með tímanum, ef þeir taka þann fasta ásetning að bæta sig hjer eptir. Þið eldri drengir! Þið berið ábyrgð á öllu því, sem þið látið smádrengina sjá til ykkar. Gætið að því, að enginn afvega- leiðist fyrir ykkar dæmi. Vandið um \ ið þá sem óverðuglega breyta, en strfðið engum á eptir, þótt hann hafi hent eitthvert glappaskot. Það er óverðugt góðum dreng. — Gaman hafa sumjr af þvf að horfa á drykkjulæti og gauragang á göt- unnm. Það finnst mjer ljótt og sorglegt að sjá. Hollari og betri skemmtun gætuð þið, drengir, liaft af því að taka ykkur á sunnudögum skemmtigöngu tveir cða þrír saman út í náttúrunni og reyna hver gæti þekkt flest íslenzk blóm. Þegar þið svo finduð eitthvert blóm sem þið ekki þekkt- uð, gætuð þið tekið það upp með rótum og sýnt ykkur fróðari mönnum. — Þið gætuð lfka safnað fallegum steinum eða ein- hverju þessh’áttar. Slíkt væri þarflegt og skemmtilegt og bærj meiri ávöxt en að ólátast eins og fífl á götunum. Ut um glugga sá jeg hjer um daginn dreng sem tók poka, all þungan að sjá, áf gamalli konu og bar hann langan spöl fyrir hana. Það þótti mjer fallegt að sjá! Frá fjelaginu. Nú eru margir af vinunum komnir út um sveitirnar til að lcita atvinnu sinnar, um leið og vjer allir sem eptir erum ósk- urn að þeim gangi sem bezt, biðjum vjer að þcir megi alls stað- ar haga sjer þannig að fjelagið hafi sóma af þeim og fái gott orð út um sveitirnar, þar eð það getur haft mikla þýðingu fyrir atvinnuútvegum næsta ár. — Bókasafn vort er smám saman af stækka og getur orðið oss að rniklu liði í vetur þótt oss vanti enn margar bækur. — þeir sem vildu st)’rkja fjelagið á þenna hátt, eru beðnir að koma bókagjöfum sínum lil heimilis fjelagsins í Grjótagötu 12. Islendingasögur og þess háttar bækur eru oss mjög kærkomnar.

x

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags
https://timarit.is/publication/493

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.