Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 2
2
MÁNAÐARTÍÐINDI.
II. ÁRG.
Nýárs kveðja biaðsins.
Náð og friður frá drottni vorum
Jesú Kristi sje með yður öllum, ungu
lesendur þessa blaðs og yður þjer
eldri, sem viljið lesa það sem jeg hef að
frambera fyrir unglingana, enda þótt
fátt sje það og tátæklegt.
Gledilegt ný]ár i Drottins nafni.
Fyrst og fremst vil jeg óska yður
þess, vinir og fjelagar í öllum deild-
um þessa fjelags, og biðja yður að
fagna vel þessutn vini yðar sem jeg
nú sendi út nokkuð stærri en hann
var í fyrra. Hann vill reyna að vera
yður góður ráðgjafi, og hollur áminn-
ari' og íræðari í því sem er gott og
fagurt. En allt sem hann segir
og frarn flytur, mun a)lt miða
1 áttina til hans, semleið fyrir oss,
og mætti oss auðnast að sýna yður
einn geisla af hans dýrð og kær-
letka, væri oss það hin mesta gleði.
Svo byrjar þetta blað þá ársgöngu
sína í Jesú nafni. Guð gefi að það
geti orðið oss til blessunar og gleði.
Fr. Fr.
-----------
Sálmur.
(Eptir N. F. S. Grundtvig-J.
Litla guðs barn! hvað amar að ?
Allt veit þinn faðir á himnum það!
Hann er svo ríkur, hjálpar æ,
Hans er allt vald um lönd og sæ.
Ó Guð’ sje lof!
Fæði og klæði, hús og hlje,
Hann lætur allt það fús í tje.
Orð hans er viðhald anda þíns,
Eiga börn heima’ að föður síns.
Ó Guð’ sje lof!
Fuglinn syngur í mörk og mó
Morgunstund jafnt sem kvölds í ró,
Sefur eins blítt á svölum stein
Sem undir þaki’ á laufgri grein.
Ó Guð’ sje lof!
Fagurt er blómið, friðað vel,
Fegurst i urð, á köldum mel,
Mælist þó ei við urtir smá,
Uppi sem vaxa guði hjá
Ó Guð’ sje lof!
Litla guðs barn, í heimi hjer
Haltu til guðs, þíns föður, þjer,
Trúðu á hans kraft og kærleiksgnótt,
Kvíðinn ei sjert, og blunda rótt.
Ó Guð’ sje lof!
(Þýtt hefur l'r. Fr.)
Gleði.
Ungi maður og unga stúlka!
Hvað veldur gleði þinni? Hvf er
bros á vörum þínum og bjarmi í
augum þjer? Er það hin rjetta
gleði, sem eingin sorg getur bug-
að eða er það gleði yfir einhverj-
um hjegómanum, sem hjaðnar
strax í fyrsta andkuli mótgangs-
ins? Komdu með mjer, jeg skal
sýna þjer sanna gleði. Nú heldur
þú að jeg muni fara með þig inn
á eitthvert hamingjuheimilið, þar
sem auður og velgengni á heima,
eða inn í hátíðasalinn, þar sem
glaumur er og glatt á hjalla, eða
inn í skrauthýsið þar sem keisar-
inn situr í mikilleik veldis síns,
og bendir með hendinni, og boði
hans er hlýtt. Nei. Þá heldur