Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.06.1900, Side 2

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags - 01.06.1900, Side 2
42 MÁNAÐARTÍÐINDI. II. ÁRG. Biblíulestur. Jeg þekkti einu sinni lítinn dreng, sem átti sjer biblíu, og hve nær sem hann gat, greip hann hana og las í henni. Blöðin urðu að vísu óhrein og sum þeirra losnuðu, en innihald- ið festist æ því meir í hug hans og hjarta, og margar ánægjustundir í líf- inu hefur þessi drengur haft af því, sem hann las þá, og ekkert hefur orðið honum að meira gagni í lífinu. Hann hefur komizt að raun um að „gt/ðs 01 d er kraptur guds til sdluhjdlp- ar sjerhverjum sem trúir", að „guðs orð er lampi fóta minna ogljós d veg- um mtnum“. Lestu biblíuna þínaeða nýjatestamentið? Kæri vinur, gjördu pað svo opt sem pú getui. Til þess að þú munir betur eptir þessu, ætla jeg að segja þjer eptirfylgjandi sögukorn, sem jeg hef lesið í dönsku blaði: »Fyrir hjer um bil fimmtíu árum síðan ferðaðist ungur maður nokkur, Brown að nafni, um England til þess að útbýta biblíum, testamentum og öðrum kristilegum smáritum, fyrir brezka biblíufjelagið. Fjelagið ætlað- ist til að hann skyldi selja þessar bækur fyrír lágt verð, en þegar hann mætti mönnum sem ekki hefðu ráð á að kaupa, hafði hann leyfi til að gefa þeim eitthvað af bókunum. Einn heitan sumardag var hann á ferð norðarlega í New Hampshire. Sá hann þá álengdar lítinn fátæklega bú- inn dreng koma gangandi. »Aummgja drengurinn, skelfing er hann aumur og tötralegur«, hugsaði Brown með sjer, »hann hefur víst aldrei gengið á skóla, og kann því ekki að lesa eða skrifa, hann hefur víst ekki ráð' á að kaupa sjer biblíu, en jeg ætla nú að tala við hann og spyrjast fyr- ir um sveitina hjerna«. Drengurinn kom nú nær og Brown stöðvaði hest sinn og kastaði vingjarnlega kveðju á dienginn. »Góðan daginn, herraminn! svaraði hann. Þeir tóku nú tal sam- an og brátt komst biblíusalinn að þvf, að drengurinn hafði gengið í skóla og var vel læs. »Þú átt víst ekkert testa- menti?« spurði Bown. Sem svarupp á þetta stakk drengurinn hendinni niður í vasann á rifnu treyjunni sinni og dróg upp slítið oggamallegt testa- menti, og sýndi honum. Brown varð glaður við, þvf á þeim tfmum var það sjaldgæft að menn bæru guðs orð á sjer, og ijet undrun sína í ljósi yfir þessu. Drengurinn sagði: »Mjer þykir svo vænt um þessa bók, sem jeg hef erft eptir móður mína sálugu. Jeg les á hverjum degi minnsta kosti einn kapítula í henni; en hún er nú nær því upp slitin«. »Fyrst móðir þín hefur átt hana, býzt jeg við að þú viljir ekki hafa skipti á henni og annari nýrri ? spurði Brown. »JÚ, það held jegþó«, sagði dreng- urinn eptir litla umhugsun, »en jeg hef ekkert að gefa á milli. Bókin mín verður brátt ónýt, því blöðin eru farinn að detta upp úr«. »Ef þú í raun og veru vilt heldur fá nýja bók«, sagði Brown, »þá láttu mig hafa þína til endurminningar, og þá skaltu fá annað testamenti í staðinn og þar að auki biblíu til þess að lesa í á sunnudögum«. Litli, fátæki dreng- urinn var frá sjer numin af gleði og þakklæti, en Brown sagði yið sjálfan sig um leið oghann fór: »Þessi dreng- ur byrjar líf sitt á rjettan hátt, úr honum getur orðið góður kristinn maður*. —

x

Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðartíðindi kristilegs unglingafélags
https://timarit.is/publication/493

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.