Ný kristileg smárit - 01.02.1893, Blaðsíða 3
3
Jesús gæti hjálpað mjer og frelsað mig frá öllum
mínum syndum, eða hvað?« — »Jú«, mælti kristni-
boðinn, »jeg hefði sagt það engu að síður og jeg
endurtek það mi: Jesús getur frelsað yður frá
öllum yðar syndum«.
Yesalings kínverjinn var frá sjer numinn. fjetta
var með öllu ótrúlegt. Og þó fannst honum svo
mikið til um þessa hugsun og þótti hún svo dýr-
mæt: að hann ætti frelsara. Hugsandi fór hann
leiðar sinnar, en kom daginn eptir heim til kristni-
boðans, til að heyra kenningu hans um frelsarann,
og hreyfa þeim mótmælum móti henni, sem hugur
hans bjó yfir. jpannig kom hann Iangan tíma dag
eptir dag. Loks kom hann einn dag með miklum
gleðisvip og hrópaði upp með mesta fögnuði, óðar
eu hann sá kristniboðaun: »Nú veit jeg það, nú
veit jeg það; jeg veit, að Jesús getur frelsað mig
af öllum syndum mínum, því hann hefir þegar gjört
það«.
Með Jesú hjálp sigraðist hann á sínu fyrra synd-
samlega líferni, svo að hann gat sagt: »Mig lang-
ar alls ekki lengur í ópíum; mig langar ekki til
neins af hinu illa, sem jeg áður framdi; en til eins
langar mig nú: til að ferðast heim til ættstöðva
minna og boða öllum lýð í Hok-Ghiang, að Jesús
geti frelsað þá frá öllum syndum þeirra«. — Vinir
hans löttu hann fararinnar og sögðu: »Viljir þú
boða hina nýju kenningu, þá vertu kyrr og flyt
hana hjer, þar sem þjer er óhætt; en farir þú
þangað, verður þú barinn og ef til vill drepinn«.
En hánn svaraði þeim: »Nei, jeg verð að fara til