Ný kristileg smárit - 01.02.1893, Blaðsíða 7

Ný kristileg smárit - 01.02.1893, Blaðsíða 7
7 á með athygli, og ljet í ljósi sjerstaka ánægju sína og tilhlökkun yfir því, að lifa svó fögru og fullkomnu lífi, og verða sannhelgur maður. Prior- inn sagði þá, að á engu riði meira til þess að verða sannhelgur, en að sýna hlýð?ii, skilyrðislausa hlýðni, án þess að spyrja uin, hvers vegna svo væri boðið, og hjet konungur að hlýða honum í hverju einu og bregða hvergi út af. þá mælt.i munkurinn: »Hverfið þjer þá aptur, herra, til veldisstóls yðvars, og rækið skyldur yðar í þeirri stöðu, sem Guð hefir sett yður í«. Konungur ljet sjer þetta að kenningu verða, og hvarf aptur til ríkisstjórnarinnar. Eptir það varð það orðtak þegna hans um stjórn hans allt til dauðadags: »Hinrik konungur lrefir lært að hlýða, og með því hefir hann og lært að stjórna«. Auga Guðs- Herforinginn La Fayette segir sjálfur frá því, að þá er hann var bandingi, tók hann eptir því, að lítið gat var á hurðinni í klefa hans; það var eigi stærra en svo, að rjett að eins máttisjá um það, hvað fram fór inni fyrir. Hermaður stóð sífellt á verði fyrir utan hurðina, til að hafa nákvæmar gætur á hverri hreyfingu hans, og auga hermanns- ins hvíldi stöðugt á honum. Herforinginu var mesti fullhugi, og það var fjarri honum að gugna, þótt eitthvað bljesi honum á móti; og þó segir hann svo frá, að að sjer hafi þótt nóg um, er hann á hverri stundu sá þetta njósnandi auga hvíla á sjer, og það svo, að sjer hafi virzt það

x

Ný kristileg smárit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný kristileg smárit
https://timarit.is/publication/496

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.