Ný kristileg smárit - 01.11.1894, Side 5
77
hefi opt skrökvað, opt verið óþægur og óhlýðinn;
jeg hefi opt sært þig og gjört þjer á móti, og
margt annað illt hefi jeg aðhafzt. En þú hefir
fyrirgefið mjer það allt, og í dag hefir frelsari minn
líka fyrirgefið mjer, og til fullvissu um það veitir
hann mjer aðgang að heilagri kvöldmáltíð. Jeg
ætla ekki framar að aðhafast það sem illt er, held-
ur verða nýr og betri maður; jeg ætla ekki að
vera fermdur til ónýtis. í dag hefi jeg staðfesfc
skírnarsáttmála minn og unnið helg og dýr heit,
og þau ætla jeg mjer með Guðs hjálp að halda„
Viljann til liins góða hefi jeg, og hann mun vissu-
lega gefa mjer krapt til að framkvæma það, því
hann er trúfastur.
Amman: Já, fylgdu honum, Pjeturminn! Jeg
hefi nú sex um sjötugt, og aldrei hefir mig eitt
augnablik iðrað þess, að jeg hneigðist að honum
og fylgdi honum; og þig mun ekki heldur iðra
þess. En óteljandi sinnum hefir mig iðrað þessf
að jeg liíði oflengi í andvaraleysi, áður en jeg koiu
til Jesú, og yfir þessu hefi jeg úthellt beiskum
tárum. Ó, hvað það gleður mig, að þú, barnið
mitt, hefir hneigt hjarta þitt til hans þegar í æsku.
Æ, vertu ætíð hjá honum, og yfirgefðu hann aldrei!
Pjetur: Biddu fyrir mjer, góða amma mín, að
jeg megi reynast honum trúr!
Amman: Já, það skal jeg með ánægju gjöra;
en jeg á nú úr þessu ekki langt eptir hjerna megin,
til að biðja fyrir þjer. Hæglega gæti það komi5
fyrir, að morgundagurinn yrði minn síðasti, og að
Drottinn þá kallaði mig heim til sín. En Guði
sje lof, að jeg get farið hjeðan í friði!