Ný kristileg smárit - 01.11.1894, Page 10
82
tugur að aldri, hár vexti, vel búinn, eu granuur
mjög og óhraustlegur útlits. Spurði hann mig að
nafni, aldri, stöðu og fæðingarstað, og loks innti
hann mig eptir því, hvort jeg hefði ekki fyrir
mörgum, mörgum árum, er jeg var drengur að
aldri, boðið drukknum manni, sem vanhelgaði
hvíldardaginn, sæti hjá nijer í kirkjunni. Jeg
varð öldungis forviða við þessa spurningu, því
maðurinn, sem við mig ræddi, var enginn anDar en
gárungs-pilturinn, sem hún móðir mín sáluga hafði
látið sjer svo umhugað um og beðið svo rækilega
fyrir. — Sagði hann mjer nú nokkuð af æfi sinni.
Haun var borinn í bænum Leeds á Englandi af
góðum og ráðvöndum foreldrum, er höfðu menntað
hann vel og alið hann upp í guðsótta og góðum
siðum. Fjórtán vetra gamall roissti hann föður
sinn, og varð móðir hans sökum fátæktar að láta
hann hætta við skólalærdóm og korna honum fyr-
ir til iðnaðarnáms. Við það nám vandist hann á
margt illt, og urðu svo mikil brögð að illum lifn-
aði hans, að það dró móður hans til dauða. Var
nú enginn, sem hefði eptirlit með honum; gekk
hann þá úr vistinni frá kennara sínum og fór til
Skotlands. Hafói hanu dvalið 2 ár í Glasgow og
lifað í svalli og andvaraleysi, þegar móðir mín
varð, eins og fyr er frá sagt, til þess að bjarga
honum úr þjónustu syndarinnar. Að sjá móður
ganga með barn sitt á vegum Drottins og sækja
guðshús, vakti hjá honum endurminningar um
liðna æskudaga, um móður hans, er hann hafði
bakað svo mikla sorg og mæðu síðustu æfiár henn-
ar og leitt til grafar með illu háttalagi sínu. Varð