Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1926, Síða 3
MÁNAÐARBLAÐ
KFUM
REYKJAVÍK
Janúar 1926
1. bl.
Anno Domini 1926
byrjar nýtt blað í K. F. U. M. að
koma út. Það er mdnaðarblað. Það
á að færa meðlimunum og öðrum
vinum málefnisins fregnir af því.
sem gjörist í fjelaginu innanlands
og utan og vera boðberi út um
landið, sem gefur mönnum upplýs-
ingu um }bessa grein starfsins í
Guðsríki. Það ætti líka að færa
mönnum þeim, sem góðan vilja
hafa, eitthvað til uppörfunar og
hvatningar og færa þeim einhverj-
ar nýjar hugsjónir til glæðingar og
styrkingar trú þeirra að svo miklu
leyti sem »blað« getur gjört það.
Heilsar það svo öllum þeim, sem
það sjá, og óskar þeim alls gengis
og allrar blessunar á þessu nýja ári,
Áramót
eru ætíð alvarlegur áfangi á mannlegri æfi.
Hib libna ár hefur kvatt oss og skilur eptir
minníngar, sumar fagrar og hugljúfar, aðrar
beiskar og sárar. Af minningunum eigum
vjer að læra. Sumar minningarnar benda óss
á að biðja fyrirgefningar á því, sem vjer
höfum vanrækt. Sumar hvetja oss til þakk-
lætis. „Lofa þú Drottinn sála mín og gleym
eigi öllum hans velg.iörðum“ (Sáim. 103, 2).
Nem staðar eitt augnablik og íhuga þetta.
Nýja árib er að byrja. Vjer horfum fram
á við. Hvað ber það í skauti sínu? Hvað
mun mæta oss, blítt eða strítt? Hver á að
vera stefna vor á komandi tíð? — Hverjar
eru vonir vorar og hver kvíðaefni? Er oss
ljós ábyrgðin, sem á oss hvílir, ábyrgðin á
dögum hins nýja árs, hvernig vjer verjum
þeim?
Nem staðar eitt augnablik og íhuga þetta!
K. F. U. M.
er eins og trje, sem stendur á einum stofni
en hefur margar stærri og smærri greinar,
hver grein hefur sitt ætlunarverk. Til þess
að allt trjeð geti verið fagurt og borið sína
ávexti, þá þarf sami mergurinn að ganga í
gegnum stofninn og allar greinarnar, sami
lífssafinn að gefa því öllu líf. Það sem gefur
K. P. U. M. tilverurjett sinn sem kristilegu
fjelagi er gubsorb, vitnisburburinn um lifib i
Jesú Knsti og starfib að því beinlínis eða
óbeinlínis að vísa ungum mönnum veginn til
Krists og vinna þá fyrir Krist. Þetta er og
á að vera sameiginlegt fyrir allar hinar sjer-
stöku starfsgreinar. — Þó hefur hver grein
sitt sjerstarf og ætlunarverk út af fyrir sig.
Fjelaginu er fyrst og fremst skipt niður í
deildir eptir aldri:
1 1 6 7 6 2
*