Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1926, Blaðsíða 4

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.01.1926, Blaðsíða 4
2 MÁNAÐARBLAÐ K. P. U. M. K. P. U. M. var stofnað 2. Janúar 1899 hjer á landi. Það var stofnað eingöngu með 14—15 ára piltum fermdum þá um vorið og haustið áður. Ái’ið eptir voru í það komnir fjöldinn allur af piltum bæjarins á því reki. Það var liðlega ársgamalt þegar þessi mynd var tekin og sýnir hún hinn ungæðingslega svip fjelagsins þá. Hjá þeim, sem lifað hafa með í lífi og vexti fjelagsins síðan, vekur þessi mynd ávalt einkennilegar hugsanir og til- finningar. Minningarnar, gleðivekjandi og svíðandi á víxl, vakna upp við íhugun hinna mðrgu örlagaþráða, sem spunnist hafa út frá þeirri samstöðustund frammi fyrir myndavjel- inni vorið 1900. Þá var vorstund og vor hið ytra og innra hjá þessum æskumönnum. Síð- an er liðinn liðugur aldarfjórðungur. Aðaldeildin (A-D) það er fjelagið sjálft; í henni eru fullorðnir ungir menn, 17 ára og þar yfir. Þeir bera allar byrðar og þeir starfa í hinum ýmsu starfsgreinum. Þeir bera aðalábyrgðina á fjelaginu og málefnum þess. Blómgun fjelagsins í heild fer eptir því, að aðal- kjarni þeirrar deildar sje í sannleika velkristnir menn og trúaðir og hafi glöggan skilning á því, að þeir eru kallaðir af Guði til þess að vinna með fjelagsstarfinu að eflingu ríkis hans og að velferð æskulýðsins. Opt virðist þáttaka meðlima í sjerfundum þessarar deildar minni en ætla mætti, en til þess liggja ýmsar eðlilegar ástæður. Að sinni verða ekki þessar ástæður rökræddar, þvi það tæki of mikið rúm í þessu blaði, en seinna verður aptur komið að þessu efni. Unglingadeildin (U-D) er fyrir pilta 14— 17 ára gamla. Það starf þyrfti að vera miklu öflugra en það er nú, því það er ef til vill mikilverðasta starfið innan fjelagsins. Það er líka langflestum eriiðleikum bundið. Á þeim aldri eru menn hvað mest að mótast og þurfa því mestrar leiðbeiningar við. Hjer stendur það mest þessari deild fyrir þrifum að oss vantar nógu marga starfsmenn fyrir þá deild. Yngsta deildin (Y-D) er fyrir drengi 10— 14 ára. Allt annað snið verður þar að vera á allri tilhögun og framsetningu boðskapar- ins en í öðrum deildum. — Þar fer fram sáningarstarf, sem miðar að því að leiða holl áhrif inn í hin ungu hjörtu og leggja grund- völlinn að heilbrigðum og kristilegum hugs- unarhætti. — Þessi deild hefur opt verið og

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.