Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.05.1926, Blaðsíða 8

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.05.1926, Blaðsíða 8
6 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. ekki, hvað hann hefur verið mjer“, sagði hún. Lögmaðurinn ræskti sig. „Jeg er neyddur til að segja yður“, sagði hann, „að jarlinn á Dorineourt hefur ekki — hefur ekki mjög miklar mætur á yður. Hann er gamall maður og hefur mjög ósveig- anlega hleypidóma. Hann hefur ávalt haft sjerstaka óbeit á Ameríku og reiddist ákaf- lega af kvonfangi sonar síns. Mjer þykir mjög leitt að þurfa að flytja svo ógeðfelt erindi, en hann er fastákveðinn í því að láta yður ekki koma fyrir augu sín. Ákvörðun hans er sú, að Fauntleroy lávarður skuli al- ast upp og menntast undir hans eigin umsjá; hann vill hafa hann hjá sjer. Jarlinn hefur sitt fasta aðsetur á Dorincourt-kast og dvel- ur þar nær öllum stundum; hann er þjáður af fótagigt og hefur engar mæitur á Lundún- um. Fauntleroy verður því að líkindum mest á Dorincourt. Jarlinn býður yður heimili á Court Lodge. það er mjög fallegur staður og ekki langt frá kastalanum. Hann býður yður líka sæmilegar tekjur. Fauntleroy lá- varði verður leyft að heimsækja yður. Hið einasta skilyrði er það, að þjer heimsækið hann ekki nje stigið fæti yðar inn fyrir hlið- ið á skemmtigarðinum. þjer sjáið því, að þjer í raun og veru eruð ekki algjörlega svift syni yðar, og jeg fullvissa yður um, kæra frú, að skilmálarnir eru alls ekki eins harð- ir og þeir hefðu getað orðið. Hagurinn við slíkan samastað og það uppeldi, sem Faunt- lerog lávarður fær, er stórkostlega mikill; jeg efast ekki um að þjer sjáið það“. Hann kveið því að hún færi að gráta eða fara út í illindi, eins og hann vissi að sumar konur mundu hafa gjört í hennar sporum. Hann komst ætíð í vandræði, þegar konur fóru að gráta og honum leiddist það. En hún fór ekki að gráta. Hún gekk út að glugganum og sneri við honum bakinu í nokkur augnablik og hann sá að hún var að reyna að gjöra sig rólega. „Errol höfuðsmaður unni Dorincourt mik- ið“, sagði hún að lokum. Hann elskaði Eng- land og allt sem enskt var. það var honum ætíð sorgarefni að vera sviptur heimili sínu. Hann mat mikils heimili sitt og nafn. Hann mundi vilja — jeg er viss um að hann mundi vilja, að sonur hans fengi að kynnast hinum gömlu, fögru ættstöðvum og alast upp þann- ig sem hentast væri framtíðarstöðu hans“. Síðan kom hún til baka að borðinu og leit vingjarnlega á hr. Havisham. „Maðurinn minn mundi æiskja þess“, sagði hún, „og það mun vera bezt fyrir litla dreng- inn minn. Jeg veit — jeg er viss um að jarl- inn muni ekki verða svo ónærgætinn að reyna til að fá drenginn til þess að afrækj- ast mig; og jeg veit að það mundi ekki tak- ast, jafnvel þótt hann reyndi til þess. —- Drengurinn minn litli er allt of líkur föður sínum til að unt væri að spilla honum við mig. Hann er ástúðlegur og tryggur að upp- lagi og hjartahreinn. Hann mundi elska mig, jafnvel þótt hann fen'gi ekki að sjá mig. Og svo lengi sem við fáum að sjást og finnast, ætti jeg ekki að bera mig illa“. „Hún hugsar ekki mikið um sjálfa £%“, datt lögmanninum í hug, „hún setur ekki einu sinni upp skilmála fyrir sjálfa sig“. „Frú mín“, sagði hann upphátt, „jeg virði tillit það, sem þjer takið til sonar yðar. Hann mun verða yður þakklátur fyrir það, er hann kemur til vits og ára. Jeg get fullvissað yð- ur um að hinum litla lávarði verður veitt nákvæm umönnum, og ekkert mun til sparað að láta honum líða sem bezt. Jarlinn á Dorin- court mun láta sjer eins umhugað um ham- ingju hans og vellíðan eins og yður sjálfri væri það“. „Jeg vona“, sagði hún blíðlega en með dá- litlum sorgarkeim í röddinni, „— jeg vona að afi hans muni elska Sedda litla. Hann er mjög blíðlyndur að upplagi og hefur ekki þekkt annað en ástúð“. Hr. Havisham ræskti sig aptur. Hann átti hálf erfitt með að ímynda sjer að liinn gigt- sjúki, uppstökki og illa lynti jarl gæti elskað nokkum sjerlega mikið; en hann vissi að hann mundi, sjálfs sín vegna, reyna til að

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.