Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1926, Side 3

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1926, Side 3
MÁNAÐARBLAÐ KFUM R E Y K J AV í K O k f. 1926 S ál mur. (Ur ensku). Við fórn og starf þú fagna skalt, Þótt i'órnað verði sjálfum þjer; Því það var Drottins þyrnibraut. Má þjónninn betri kjósa sjer? 0, starfa enn og vertu viss, Það verður ekki nytjalaust. Þótt sjáirðu’ engan ávöxt hjer, Lát eigi bila von og traust. Þitt tjón á jörðu’ er himneskt hnoss, Hver hulin sáning ávöxt ber; Hvað gjörir til þó geipi menn Ef Guð í sál ber vitni þjer. 0, haltu áfram! Dagur dvín, Það dimmir brfitt og kvöldar senn, Því kasta deyfð og drunga burt Því doðinn aldrei vinnur menn. Þótt gangi tregt, ei lamast lát, En lifðu Guði og bið og vinn; Á þjóðbraut lífsins þreytstu ei Að þvinga menn að koma inn. Þú raust þíns herra heyrir brátt, Þá hvílist strit og fyllist von; Og heimför eptir útlegð býðst Ur æfi þinnar Babylon. »t>að er sagt«. „Það er sagt“ svo afarmargt og að hlaupa eptir því er óðs manns æði. Undir þessu orði dylst opt mikið illt. Bak við það stendur opt uppspunnin lygasaga, eða þá lýgi og sann- leika er blandað liæfilega saman. „Það er sagt“, „Menn segja“ er opt haft til þess að dylja sína eigin ánægju yfir því að náung- inn sje ófrægður eða gerður tortryggilegur. Með þessum fáu orðum má auðveldlega koma af stað meinlegri lygasögu. Og sá, sem fyrir henni verður, stendur algjörlega berskjaldað- ur fyrir. „Það er sagt“ segja, sumir í aumk- unarróm og með meðaumkunarsvip, sem á að gefa til kynna sorg yfir því að slíkt skuli vera sagt um N. N., en því miður muni eitt- hvað vera hæft í þessu. Þessi uppgjörðar- sorg kemur illa upp um sig. Ef um virkilega sorg væri að ræða, þá þegðu menn og hefðu það ekki eptir. Mönnum er einatt ekki eins leitt og þeir láta, er þeir eru að skýra. frá því, sem „sagt er“. Viðbjóðlegast er það, er menn gefa þessu „það er sagt“ kristi- legan vandlætingarsvip og gjöra sig digra af því. Ef þú getur ekki komizt hjá að heyra einhvern óhróður um náunga þinn með þessu óákveðna »það er sagt«, þá endurtaktu það aldrei, því þá verður þú samsekur þeim, sem fyrstur spann óhróðurinn upp, ef hann er ósannur; ef eitthvað kynni að vera hæft í því og þjer fellur það þungt af því það skift- ir miklu máli fyrir hinn sakborna, þá farðu og

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.