Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.10.1926, Page 5
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
3
sem lagt er í að greiða fyrir gróðrinum, eins
og Matthías kvað:
„„Hvað gjörir þú mjer, það gjöri jeg þjer.“
Svo greinir hin kalda mold.
„Ef gleður þú mig, þá gleð jeg þig,
Þín gæfa er jeg“, segir fold.“
Gr. B.
Veraldarsambandsfundurinn
í Helsingfors
var haldinn fyrstu dagana í Ágúst. Saman
voru komnir 1500 gestir frá 50 löndum. 1.—
6. Ágúst stóð fundurinn. Helsingforsbær var
allur skreyttur. Pyrst var haldin guðsþjón-
usta til að bjóða menn velkomna og talaði
Gummerus biskup; svo bauð bærinn þá vel-
komna í skemtigarði bæjarins, og komu þar
fram fulltrúar frá landstjórn og bæjarstjórn.
Þar næst var um kvöldið byrjaður fundurinn
sjálfur, þar sem John Mott talaði um hinar
nýju æskuhugsjónir í núverandi tíð og boð-
skapinn um Jesúm Krist. —- Síðan hjelt fund-
urinn áfram til 6. Ágúst. Margar stórfeldar
ræður voru haldnar og áhrifamiklar. Þar á
meðal talaði aðalframkvæmdarstjóri Indlands
K. F. Paul um „Jesúrn og þörf Indlands“.
Kínverjinn Zin talaði meðal annars um, að
æskulýðurinn þarfnaðist liins lifanda Krists,
og boðskapinn um hann eins og oss er hann
kendur i heilagri Ritningu. — Mest er látið
af ræðu erkibiskups Natans Söderbloms, þar
sem hann með miklum krapti og alvöru lagði
hinum mörgu æskuleiðtogum á hjarta alvör-
una i starfinu og lagði aðaláherslu á þetta:
„Ekkert er meira áríðandi en það, að halda
því óbifanlega fast fram að kristindómur án
apturhvarfs og kristilegra siðgæða er ónýtur.
— Kristindómur, sem ekki er látinn fá
áhrifavald á öll mannleg sambönd á ekki
skilið að heita kristindómur“. —
Saga frá Kína.
Uppörfandi er að heyra eptirfarandi sögu,
er gerðist í Chungking í fylkinu Szechuan
í Vesturkína:
Pyrir mörgum árum síðan kom ungur mað-
ur, 18 ára gamall, til hins stóra bæjar Chung-
king. Alt sem hann átti voru fötin, sem hann
stóð í og 53 „smámyntir“ (hjerumbil 2—3
aurar í allt). Nú þurfti hann að ryðja sjer
braut og fá eitthvað að gjöra. Faðir hans
var dáinn og hann átti engan að. Hinn ungi
maður hjet Tze-jú Liú. í fyrra gaf hann um
hálfa miljón króna til kristilegrar starfsemi
í Chungking.
En löng æfisaga liggur milli þessara tveggja
atburða. Fyrst voru mörg þrengingarár, þar
sem Tze-ju fjekkst við allt mögulegt; stund-
um vann hann í prentsmiðju, stundum seldi
hann sápu og annan smávarnað; varð eitt
sinn blaðasali og margt annað. Svo varð hann
„Agent“ fyrir Singer sanmavjelafjelagið í
fylkinu Szechuan og varð á endanum ríkur
maður. Þegar hann var 24 ára gamall komst
hann í kynni við kristindóminn í K. P. U. M.
í Chungking, varð gagntekinn af kærleika
Jesú Krists og gaf honum hjarta sitt og þjón-
ustu. Síðan varð hann einn af forstöðumönn-
um hins kristna safnaðar í Chungking og í
K. P. U. M. Svo 1923—4 ferðaðist hann í
kring um hnöttinn, og er þá orðinn gamall
maður. Þegar hann kom heim aptur gaf hann
allar eigur sínar og skipti þeim í þrjá staði,
einn hlutann gaf hann söfnuðinum, annan
gaf Kann barnahæli, og K. P. U. M. hinn
þriðja. — Sagan er lífssaga full af auðsýni-
legum merkjum um handleiðslu Guðs.
(eptir „Fra K. F. U. M. i Kina“).
Nú eru allir fundir og samkomur byrjað-
ar aptur eptir sumardreifinguna. Vjer von-
um að allir reyni af fremsta megni að sækja
vel samkomur fjelagsins í vetur.