Tákn tímanna - 15.10.1918, Blaðsíða 6

Tákn tímanna - 15.10.1918, Blaðsíða 6
6 TÁKN TÍMANNA sem maður biður fyrir vandamönnum sínum?« »í prédikunarstarfi mínu hef eg séð mörg áþreifanleg dæmi upp á þess kon- ar bænheyrslu«. Og svo sagði eg henni frá mjög markverðum viðburði, sem ný- lega hafði ált sér stað, þar sem bænir konunnar liefðu orsakað afturhvarf mannsins. »Hvað getur þá verið til fyrirstöðu í þelta skifti?« spurði hún; »ætli það sé mér að kenna?« »Það getur verið«, svaraði eg. »Ritningin segir, að það sé bæn trúarinnar sem veiti blessun; það getur verið, að yður vanti þá trú, sem er aðalskilyrðið fyrir bænheyrslu. Hald- ið þér að Guð sé fús á að heyra bænir yðar?« »Stundum held eg það og slundum ekki«, svaraði hún. »Hvíl- ir afturhvarf mannsins yðar eins og byrði á sálu yðar? Er það insta þrá bjartans að maður yðar verði sáluhólp- inn?« spurði eg enn fremur. »Ó, eg vildi gefa hvað sem vera skyldi, bara að hann yrði sannkristinn maður. Eg var nýkominn á þennan stað, og var ekki vel kunnugur breytni eða lunderni konu þessarar, en mér fanst þó, að það hlyti að vera einhver veikleiki í fari hennar og gat því ekki gert annað en að biðja og svo bíða þangað til eg fengi lækifæri til að kynnast ástæðum henn- ar betur. Tveim vikum seinna saknaði eg henn- ar á hinum vikulegu bænasamkomum, og þegar eg af tilviljun mætti henni degi seinna, sagði eg við hana : »Þér voruð víst ekki á bænarsamkomu i gærkvöldi«. »Nei, það var eg ekki«, sagði hún og roðnaði um leið; »maðurinn minn vildi heldur að eg færi með börnunum á söngskemtun og eg gerði það til þess að þóknast honum«. Eg varð bissa á þess- ari skýringu, talaði að eins fáein orð um vanalega hluti og hélt svo leið mina. Eftir þennan líma saknaði eg hennar oft á bænasamkomum, en svo bar við að eg mætti benni í annað skifti og sagði þá: »Eg sá yður ekki á bænasamkomu í gærkvöldi«. »Nei«, svaraði hún með tindrandi augum, »eg var þar ekki, Hr. G. befur stofnsett dansskóla hér í bæn- um og heldur æfingar hvert fimtudags- kvöld. Hann er ágætur kennari, og maðurinn minn bað mig um að fara með börnin á æfingarnar, og það gerði eg lil þess að þóknast honum. Að lík- indum verð eg ekki ætíð á bænasam- komum meðan á æfingunum slendurjþví maðurinn minn vill ekki láta börnin fara þangað nema eg fari með þeim, og þér skiljið vel að eg vil gjarnan láta það eflir honum«. Undrunarsvipurinn varð svo auðsær á andlili mínu, að hún tók strax eftir honum og spurði: »Þér álítið þó ekki að það sé órétt að dansa; gerið þér það?« Án þess að taka tíma til að hugsa mig um svaraði eg slull: »Eg held, að heimsókn yðar og barna á dansskólanum þau kvöld, sem bæna- samkomur eru haldnar, vægast talað, miði ekki að því að sýna manni yðar bina afarmiklu þýðingu kristindómsins eða að nokkru leyti flýli fyrir honum að íinna Krist frelsara sinn. í byrjun varð hún alveg utan við sig út af minu óvænta svari, en hún náði sér þó brált aftur og kom með ýmsar spurningar, sem urðu til þess, að við ræddum málið ítarlega. En liér nægir að skýra frá þvi að við vorum ekki sam- inála í öllum atriðum; ekki var heldur liægt að sannfæra bana um, að breytni hennar gæti verið bænheyrslunni til fyr- irstöðu.

x

Tákn tímanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.