Tákn tímanna - 15.06.1919, Síða 3

Tákn tímanna - 15.06.1919, Síða 3
TÁKN TÍMANNA 67 af hyllunni, lesa i henni um tima, krjúpa á kné og biðjast fyrir. Pegar hinn ungi fríhyggjumaður sá alt þetta fór hann úr fötunum og ætlaði upp í rúmið. »Ég hélt að þú ætlaðir að vaka fram eftir nóltinni«, sagði föðurbróðirinn. En hinn ungi vantrúarmaður vissi að það var óþarfi að vaka með skammbyssu í hendinni þar sem Guðs orð er haft um hönd og húsið helgað með bæn. Myndi spil, vínflaska, eða eintak af »Age of Reason« hafa svift þennan unga frí- hyggjumann hræðslunni alt í einu eins og biblían gerði? Engar biblíur þar. Allir vila að þar sem biblían er lesin hefir hún þau áhrif á fólkið, að það lifir i friði. Hvernig er því varið? Ef hún væri skaðleg bók mundum vér vænta þess að finna hana i híbýlum binna alræmdu glæpamanna. í New York er slórl safn þar sem þeir geyma allskonar þjófalykla, laghnífa, innbrots- járn, drápsvélar og skammbyssur, sem leknar hafa verið frá glæpamönnum. Ileldur þú að í þessu safni sé eilt ein- asla nýja testamenti ? Hvers vegna ekki? Ef það væri skaðleg bók mundum vér vænta þess að finna nýja testamenlið í öðrum vasanum og skammbyssuna í hinurn hjá glæpamönnum. En þau eiga ekkert saman að sælda. Eill kveldið var voðalegt rifrildi á einhverju heimili og maðurinn rotaði konuna — með biblíu? — Nei, með vínflösku. Þar sem biblian er lesin ríkir friðurinn á heimilinu. 0ðruvísi en allar aðrar bækur. Hvað er það sem gerir þessa bók öðruvísi en allar aðrar bækur? Hvers bók er hún? Hverjir rituðu hana? Flesl- ir vantrúarmenn hafa undarlegar hug- myndir þessu viðvíkjandi. Postulasöfnuðirnir fengu guðspjöllin af þeim, sem höfðu ritað þau; og bréf- in voru rituð og undirskrifuð af mönn- um, sem þeir þektu mjög vel. Páll posl- uli ritaði: »Kveðjan er með minni, Páls, eigin hendi, og er það merki á hverju bréfi«. Hvað vitnuðu þessir höfundar um ? Þeir boðuðu það, sem þeir höfðu heyrl, séð og vissu. Jóhannes postuli segir ekki: »IJað sem mig hefir dreymt, og það sem eg hefi ímyndað mér eða gizkað á boða ég yður«, heldur: »Efni vort er það, sem var frá upphaíi, það sem vér höf- um heyrt, það sem vér höfum séð með augum vorum, það sem vér horfðum á og hendur vorar þreifuðu á, það er orð lífsins« — 1. Jóh. 1, 1. Þetta er vitnis- burður þeirra. Þeir vitnuðu að þeir sáu Krist í lífi og dauða; að þeir sáu hann eftir upprisuna; þreifuðu á höndum hans, sáu naglaförin og spjótssárið. Þeir höfðu þekkingu á öllu þessu og vilnuðu um það. Þeir prédikuðu þann Krist, sem dó, og reis frá dauðum aftur. Farðu og láttu krossfesta þig og rís þú upp aftur. Þegar Lepaux, meðlimur hinnar frönsku stjórnarnefndar, kom til Talley- rand og kvartaði undan því að hin nýju trúarbrögð — Theophilanthropy — tækju Iillum framförum meðal fólksins, svar- aði hinn gamli slægi stjórnmálamaður: »Mig furðar alls ekki á þeim erfiðleik- um, sem þú mætir i tilraunum þínum til að útbreiða þessa nj'ju trú. Það er enginn hægðarleikur að koma inn nýj- um trúarbrögðum hjá fólkinu. En það

x

Tákn tímanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.