Tákn tímanna - 15.06.1919, Síða 4

Tákn tímanna - 15.06.1919, Síða 4
68 TÁKN TÍMANNA er eitt, sem eg vil ráðleggja þér að gera og þá mun þér vafalaust takast betur að framkvæma það«. »Hvað er það? Hvað er það?« spurði Lepaux með ákefð. wþað er þetta«, svaraði Talleyrand: »farðu og láttu krossfesla þig, grafa þig, og rís þú svo upp aflur á þriðja degi. Farðu svo út um landið og gerðu krafta- verk, vek þú hina dauðu, lækna þú als- konar sjúkdóma og rek þú út djöfla, þá er enginn vafi á að þú munt ná tak- marki þinu. Hinn mikli heimspekingur gekk í burtu án þess að gera ncinar athugasemdir. Enn hefir engum frihyggjumanni hepn- ast að uppfylla þessi skilyrði. En Krist- ur dó og reis frá dauðum aftur. Og til þess að kunngera þennan dýrðlega sann- leika létu fylgjendur hans lííið með gleði. Boðskapur þeirra er ritaður í þess- ari bók. Postularnir vísa til spámann- anna, og spámennirnir vísa til sálm- anna og lögmálsins, sem geíið var frá fjallalindum Sínais. Pannig förum vér til baka i tímann, bók úr bók, þangað til að vér komum lil hinnar fyrstu Mósebókar sem ekki vísar lil neinnar annarar bókar, og skiljum vér þá að í þessari bók erum vér komnir að upp- sprettunni. Frh. Kirkjan og ríkið. Hinar hællulegustu grynningar mcð- fram tímans ströndum eru sameining ríkis og kirkju. Vér trúum því að bæði ríkið og kirkjan sé af guðdómlegum uppruna og að allir ættu að bera virð- ingu fyrir þeim. Pað er ekki hægt að stjórna ríki i friði þar sem enginn guðs- ótti er. Meðan vér játum að þau bæði séu af guðdómlegum uppruna, höldum vér því fram, að verkahringur þeirra sé aðgreindur. Stöðugleiki stjórnarinnar og heill þjóðarinnar er undir algerðuin að- skilnaði ríkis og kirkju kominn. Tilgangur sannrar sljórnar er að sjá um velferð borgara landsins, að við- halda reglu, að vernda lítilmagnann og að veita öllum mönnum fullan rétt til að tilbiðja hinn almátluga samkvæmt sannfæringu samvizku sinnar, eða með öðrum orðum, að veita öllum fult borg- aralegt frelsi, kenningarfrelsi og trúar- frelsi. Og hver sú stjórn sem þannig uppfyllir skyldu sína, hefir heimtingu á stuðningi allra borgara. Kirkjan er sá vörður, sem guð helir sett til að vernda um hina sönnu trú. Söfnuðinum er vald gefið fyrir kratt heilags anda til að leiða mannkj'nið inn á brautina sem leiðir til hins eilífa lífs, það er verk safnaðarins að prédika guðs orð og með allri hógværð og kærleika að leiða menn til að sýna Kristi lotn- ingu. Hvenær sem þjónar Krists hafa unnið verk sitt með guðsótta og kær- Ieika í hjartanu, hafa þeir leitt menn til að fremja það sem gott og göfugt er, og á hinn bóginn hefir það fært mönnum hamingju og sannan frið. Kirkjan hefir stöðu, sem ekkert annað félag eða sljórn getur tekið að sér. Engar veraldlegar fyrirskipanir eða ráðagerðir geta breytt hinu svikula mannshjarta. Vér sjáum oft að tveir eða þrír ó- skaðlegir efnispartar mynda — þegar þeim er blandað saman — bið banvæn- asta eitur eða liið hætlulegasla sprengi- efni. Meðan þeir voru aðgreindir voru þeir nytsamlegir og óskaðlegir. Þannig er einnig kirkjunni og ríkinu varið. Það var á þriðju og fjórðu öld að hin kristna kirkja fyrst fór að leita

x

Tákn tímanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.