Tákn tímanna - 01.03.1920, Page 1

Tákn tímanna - 01.03.1920, Page 1
II. ár. Reykjavík marz 1920. 6. tbl. Náð og lögmál, Sá, sem hafnar lögmálinu, hafnar einnig náðinni; því náð og lög eru sam- eiginleg. Og að ræða um náð án lög- máls er ómögulegur hlutur. Látum oss líta á þetta. Að vera und- ir náðinni er jú hið sama sem að vera náðaður. En hverjir eru þeir sem verða náðaðir? Eru það ekki þeir sem hafa brolið lögin og verða dæmdir sekir. Regar náðarrétturinn er setlur, hverjir eru það þá sem hann náðar? Eru það borgarar sem lifa heiðarlegu, hæversku lífi og njóta virðingar mannfélagsins, eða eru það aumingja fangarnir, sem hafa brotið lög landsins og verða að þola hegningu? Eru það ekki hinir síð- arnefndu? Eru það ekki þeir sem eru undir lögunum, er þurfa lijálpar og náðar með? Getur maður talað um náð áður en yíirtroðsla hefur átt sér stað þar sem lögin eru engin lil? Nei, hug- myndin um náð er ómöguleg nema í sambandi við lög. Náð felur í sér lög. Að tala um náð og samtímis segja að ekkert lögmál sé til, er að gera gys að Guðs orði og heilbrigðri skynsemi. Að- eins þeir, sem hafa brotið lögmálið og meðganga og iðrast þess og hafa ásett sér að hælta lögmálsbrotum — eiga von á náð. Grundvöllur náðarinnar er lögmál. Án lögmáls er engin náð. Glæpamaður nokkur hefur brotið lög- in og honum er náð að vörmu spori. Ilann verður seltur i fangelsi. Mörg ár líða lijá. Hann fær viðbjóð á þvi lífl sem hann lifði áður, og ásetur sér að, ef hann nokkurn tíma kemst lífs út, að verða heiðarlegur maður. Já hann gerir meir en það. Hann ætlar sér meðan hann er í fangelsi, að gera hið rétta og haga sér skikkanlega. Hann gerir það. Tímar líða. Allir sjá nú að hann reynir að gera það sem rétt er. Fangaverðirnir

x

Tákn tímanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.