Tákn tímanna - 01.06.1920, Blaðsíða 2

Tákn tímanna - 01.06.1920, Blaðsíða 2
TÁKN TÍMANNÁ aðarboðskapurinn hefir verið tilkyntur með mælsku og frjálsræði, hefir fjöld- inn ekki tekið á móti honum. Boðskap- urinn mun því aldrei geta myndað sér stjórnmálalega afstöðu eða afhald í því núverandi ástandi heimsins. Enn fremur er það viðurkent atvik, að í þeim tilfellum, er menn, sem héldu sig vera verjendur og forvígismenn boð- skaparins, hafa leitast við að vinna að stjórnfræðislegri tilsjón við samstarf- endur sína, og hafa gert stjórnmálin að örvitahúsi og trúarbrögðin að hreinsun- areldi og þeir hafa fiekkað hendur sínar með blóði mannanna. Að öðru leyti gleyma þeir því, að guð hefir lagt áform sitt fyrir þessa vora jörð og þegar þetta áform er end- að, en heldur ekki fyr, mun sverð og alt sem því við kemur, verða að hverfa frá jörðunni, og eilífðarhásætið verður endurreist hér og Guð mun sjálfur taka við yfirráðum. Hann vill ekki ráða yfir eða með þeim ríkjum, sem nú eru starfandi. Öll ríkin munu þá að engu gerð, sökum eyðileggingarinnar á dóms- degi. Sálmaskáldið segir: »Eyðandi eld- ur fer fyrir honum og í kringum hann geysar stormurinn«. — Postulinn Pétur skrifar um þennan dag, »um eyðilegg- ingardag hinna óguðlegu«, og hann segir enn fremur, »að frumefnin sundurleysist í brennandi hita og jörðin og öll þau verk, sem á henni eru, skulu hrennast«. (2. Pét. 3, 10). Skáldið segir, »að drott- inn skuli slá þjóðirnar með járnsprota og mölva þá sem leirsmiðsker«. þegar Guð hefir gert þetta, munu syndarar og synd verða afmáð. Hið eina, sem mun verða til að minna á, að synd hafi nokkru sinni verið í heiminum, mun verða: Ör eftir nagla og spjót í síðu frelsarans, er hann kemur aftur að end- urreisa ríki sitt, þá mun ekki verða nein hætta fyrir nýju stríði, því að synd og alt sem henni fylgir verður að víkja fyrir hinu mikla veraldarríki. Stríð er aðeins hræðsla sökum syndarinnar. í réttlætisríkinu mun syndin aldrei sjást meir, því þessi þúsund-ára-ríkis-tilraun, harmsögu- og eyðileggingarástand og dauði skal vera fullvissa móti nýju falli. »Neyðin getur ekki komið tvisvar«. Mennirnir hafa klagað yfir ráðstöfun Guðs með syndina: Þeir hafa fundið að lækningarlyfjum, er hann hefir notað móti syndinni. t'eir hafa jafnvel neitað tilveru hans, því að þeir gátu ekki eða vildu ekki sjá réttlæti liins alvitra Guðs, er hann leyfði syndinni að hlaupa sinn bana til enda. En í gegnum alt þetta hefir hinn kærleiksríki Guð, hinn meðaumkunar- fulli og viðkvæmi himneski faðir og Guðs sjálfsfórnandi sonur í sínum mikla vísdómi framkvæmt það áform, sem verndar allan alheiminn, og í eitt skifti fullvissar og verndar frá synd og henn- ar fylgjendum. Slríðið hefir gert sig sjálft óvinsælt, og dauðinn orðinn að hræðslu. Hvernig mun það þá ekki vera með þær syndlausu verur í Guðs háa alheimi, sem hafa virt fyrir sér sorgarleik syndarinnar frá þeim degi, er Satan tældi hóp af englum himins- ins og beitli starfsemi sinni hér á jörð- unni? Þeir hafa verið voltar að hinum hræðilegu framkvæmdum í því illa, þeir hafa séð það í starfsemi meðal engla og manna, þeir hafa séð það lyfta sinni hefndarhendi móti Guðs eigin syni, og bæði þeir og kynslóðirnar munu hafa séð ástand jarðarinnar í eymd, tárum og blóði, þar til að síðustu, að allur heimurinn safnast saman til stríðs,

x

Tákn tímanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tákn tímanna
https://timarit.is/publication/498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.