Syrpa - 01.03.1920, Qupperneq 14

Syrpa - 01.03.1920, Qupperneq 14
76 S Y R P A upp. Hún kendi mér að tala ensku. Og svo var eg líka vinnu- kona um tíma i gistilhúsi, þar sem enska var töluð. “Hvað ihét gistihúsið?” sagði O'Brian. ‘'Það hét Visundurinn (The Buffálo), og stóð á áfbakkanum á Douglas-tanganulm. Og gestgjafinn hét McLean.” "Varstu ekki vinnukona í einhverju öðru gistihúsi? “Nei,” sagði Madeleine; “eg var hvergi annarsstaðar vinnu- kona. Eg var þar í tæp þrjú ár, og fór iþaðan um vorið 1870. “Hvað mörg gistihús voru þá nálægt Fort Garry?” “Lálfctu mig nú sjá,” sagði hún; “þau voru eitt — tvö — þrjú — og það fjórða hérna í St. Boniface. Já, þau voru fjögur alls.” “Hét nokkurt þeirra: Hinn hvíti hestur? ” “Nei; en eitthét: Hinn brúni hestur.” sagði hún. “Það stóð á Assiniboine-ár bákkanum. Það brann til kaldra kola rétt fyrir jólin 1869. Það var álitið að það hefði verið kveikt í því með vilja, og að þar hefði brunnið inni maður. sem enginn vissi hvað hét, osj enginn vissi. hvaðan kom. Sumir sögðu að hann hefði verið hvftur, en aðrir. að hann hefði verið kynblendingur. En hvort sem hann var hv'tur eða dökkur. þá bar öllum saman um það. að hann hefði háft mikið af crullnemngum meðferðis. Bein mannsins fundust í öskunni, en ekki gullið. — En um hvaða mann vildir þú shoyrja mig?” “Hann var Islendingur,” sagði O’Brian. "Hefirðu aldrei þekt neinn fslending?” “Islending?” sagði Madeleine. “Jú, eg hefi heyrt Islend- inga getið.” “Og þessi IslendinErur, sem eg á við, var hér í Rauðárdalnum haustið 1 869, og ef til vill lengur." sagði O’Brian. “Hvað hét hann?” O’Brian leit til mín. “Hann hét Hálfdán Arnórsson Berg,” sagði eg. “Já. það veit trúa mín, að hann hét Berg,” sagði O’Brian; hann var sjógarpur mikill og sóma-karl hinn mesti í hvívetna.” “Var hann siómaður?” sagði Madeleine. “Tá.” sagði eg; "og hann mun hafa kallað sig: Berg Skip- hrotsmann- eftír að hann koim í Rauðárdalinn." “Ö. nú veit eg við hvern þið eigið!” sagði Madeleine, og það lék angurværðar-bros um varir hennar sem allra snöggvast “Já, eg man vel eftir herra Berg skipbrotsmanni. Hann var mjög góð-

x

Syrpa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.