Verði ljós - 01.09.1896, Side 10

Verði ljós - 01.09.1896, Side 10
138 Kristsmeim — krossmemi. ii. Jóhann Friðrik Óhcrlin. ílSiðnrl.) En eins og fyr er getið, sá Óberlín þegar er hann kom í Steindalinn, að hjer þurfti einnig margt að bæta í tímanlegum cfnum, því aistaðar blasti vesaldómurinn og óhirðingin við manni. Ekrurnar voru orðnar ónýtar, garðar allir arðlausir, búpeningur úr sjer genginn af ræktarleysi og vankunnáttu bændanna, óþrifn- aðurinn fram úr hófi utan liúss og innan, og vegir svo að segja engir um dalinn milli þorpanna. Óberlín sá, að um vcrulegar fram- farir í andlegum efnum gæti varla orðið að ræða, fyr en ráðnar væru einhverjar bætur á öilu þessu. Og sjálfur gjörðist hann leið- togi sveitarinnar cinnig í þessum efnurn, þegar enginn fanst, cr hann treysti betur til þess en sjálfum sjer. Það yrði of langt mál, cfsegja ætti hjcr ítarlega frá ölluþví, sem Óberlín fjckk til leiðar komið í prestakalli sínu, or horfði til verklegra framfara, enda er þess síður þörf sem til er áður á voru máli ágætlega samin æfisaga þessa manns, þar sem öliu þessu starfi Óberiíns til umbóta á tímanlegum hag sóknarbarna sinna, cr nákvæmlega lýst.* Það nægir að geta þess, að að sama skapi sem traust sóknarmanna á hagsýni Óberlíns fór vaxandi, að sama skapi tókst honum og að fá flestu því framgengt, sem honum ljek liug- ur á og scm hann sá að til nytsemda horfði. Svcitinni tók brátt að fara fram, hagur fólks fór með ári hverju batnandi, velmegun færðist í garð og hvers konar menning jókst. Þogar Óberlín hafði dvalið þar i 40 ár, hafði Stcindalurinn og Steindælir tekið þeim stakkaskiptum hið ytra, að naumlega varð sjeð, að það væri sama sveitin. Eu þó voru stakkaskiptin í andlegum efnum cnn meiri, þvi svo mikla rælct sem Óberlín iiafði lagt við aliar hinar ytri um- bætur, hafði honum ckki eitt augnablik glcymzt það, sem vora átti aðalstarf hans í Steindalnum, að gjöra Steindæli að góðum guðs- ríkis-borgurum. Þetta var ávalt síðasta takmarkið, sem Óberlín kcpti að í fullri samkvæmni við orðtak sitt: „alt fyrir frelsarannl" *) Shr. „Tvær ævisögur, útgefmir af liinu islenzka bókmpnntafjelagi- Kli. 1839“. Seiuni æfisagan, er hefir fyrirsögnina: „Þaríur maður í eveit“, or æii- saga Óberiíns, sainin af Ólnfi PúlBsyni, þá guðfræðÍBnemaiula í Kaupmannahöfn, siðast prófasti og prosti að Melstað í Húnavatnssýslu (f 1876)

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.