Verði ljós - 01.02.1898, Blaðsíða 13

Verði ljós - 01.02.1898, Blaðsíða 13
29 írfenmrnir, sem svo opt bregða kristmmi mönnum um ofstæki og trúar- ofsa, ganga sjálfir miMu lengra í ofstæki sínu. Þegar menn liafa lesið „Þyrna“, þarf þá eigi að furða á þvi, að skáldastyrkurinn sæli til Þorst. Erlingssonar mæltist illa fyrir víða meðal laiídsmanua. Því að eigi er liægt að neita þvi, að mótsögn virðist vera í því, að ríkið styður og verndar kristna kirkju meðal vor, en veitir samtímis mamii verðlaun, sem yrkir níð um trúarbrögðin og kirkjuna. Það er nú raunar ekki geraudi mikið úr því, þótt þingið veitti Þor- steini skáldalaun; þingmaður Vestmanneyiuga mun iiafa átt mestau þótt í því, að því varð framgengt og hans dugnaði muu Þorsteinn liaí’a átt þann styrk að þakka. Auk þess mun fátækt skáldsins og bágu kjör hafa vakið meðaukvun í brjósti þingmauna og er það eigi að lasta. Jeg fyrir mitt leyti gladdist fremur j^fir því, ef fjárhagur Þorsteins gæti batnað; en hræddur er jeg samt um, að sú regla verði erfið í fram- kvæmdinni, ef alþingi ætti að veita hverjum bágstöddum hæfileikamanui laudssjóðsstyrk. Það kom berlega fram á þinginu í sumar, að margir þingmenn álitu kvæði Þorsteins beina árás á kristindóminn og því ó- viðfeldið að veita honum skáldastyrk, euda var liann þá feldur. Jeg hefi sjeð þá ósk framsettaí „Stefui“, að „Þyrna“ ætti liver eiuasti unglingur að eignast jafnsnemma kverinu sínu!! Það er nú auðsjeð hverrar skoðunar sá maður muni vera, sem það skrifar. Ovildin ein til kirkjunnar knýr þess háttar óskir fram. En þessi ósk er næsta óviturleg og vanhugsuð; því að enginn mun æskja þess eða telja það holt að koma efasemdum, og mn leið hugarstríði, inn í barnssálina þegar á unga aldri; en hjá því getur ekki farið, ef ungl- ingunum er kennt kverið og hin kristilegu sanuindi, um leið og þeim er rjet.t bók, sem segir þeim að allt þetta sje lygi og tómur heilaspuni, og þeim boðið að kynna sjer hana. Nei, þá er betra og skynsamlegra að banna að kemia börnum sínum kverið. Og það vildi jeg iiaí’a bent á, að lifsskoðun sú, sem birtizt í þessari margnefndu bók, er gagustæð og audvíg trú kristinna manna. Einmitt þess vegna er luin oss áminn- lug um að kjósa nú, hvort vjer viljum heldur þjóna Ivristi eða vau- trúnni og þeim anda, sein hún leiðist af. Jeg skal að endingu geta þess, að jeg er sannfærður mn, að hið uiikla hatur og beiskja höí'undarins gegn maimfjelaginu og kirkjunni, á uieðfram rót sína að rekja til þess, hve óblíð lífskjör liann liofir átt V]ð að búa mestan part æfiunar. Eátæktin og eymdin eru þungarfylgi- konur, og erfið líískjör samfara veildaðri lieilsu geta stundmn dregið skugga fyrir alla sól. Þetta verður hæfileikamauninum enu þungbær- ara, því að hanu fimmr kraptana hjá sjálfum sjer, en liefir ekki tök á ueyta þóirra. í mörgum af kvæðunum kennir og „hryglu og and- r0iviinuu þeirrar sálar, er fátæktiu liefir leikið hart; það er eins og ^ágindin, heilsuleysið og fátæktin liafi sezt fyrir í skáldinu; þess vegna

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.