Verði ljós - 01.09.1899, Blaðsíða 14

Verði ljós - 01.09.1899, Blaðsíða 14
142 opinberaði oss. Siðferðileg inenning, sem ekki grundvallaðist á lifandi trú, reyndist haldlitil og kraftlaus þegar fram í sækti, eins og líka reynsl- an væri margsinnis búin að sýna. Það væri viðfangsefni kristindóms- ins að sýna sameinanleika trúar og siðgæðis, því að hvergi sæist sam- eining þessa tvens á fullkomnara stigi en i persónu maunkynsfrelsaraus. Siðferðileg menning án t.rúar gæti að visu orðið einstökum mönnum forgarður að guðs ríki, en hvenær sem menn vildu reyna að setja sið- ferðilega menningu i stað kristindómsins, þá væri það skylda vor að rísa upp andmælandi. — I uinræðum þeint, er spuunust út af fyrirlestri þess- um, tók Fr. Petersen háskólakennari það fram, að hin trúarlausa sið- fræði væri nú aftur að hverfa, því að reynslan væri *þegar farin að sýna mönnum haldleysi hennar og kraftleysi þess siðgæðis, er ekki bygðist á grundvelli trúarinnar. I stað þessa væri nú að myndast eins konar trúarleg siðfræði, en vel að merkja: siðfræði, sem ekki skifti sér neitt afhinui kristnu trú, t.rúarleg siðfræði án Krists, sem engu síður væri ástæða til að vara menn við eu við hiuui trúarlausu siðfræði. Eftir hálfrar stuudar fundarhlé flutti ungur danskur prestur, C. Skov- yaard-Petcrsen, einn af lang eíhilegustu yugri prestum Dana, einkarfagra og vekjandi ræðu út af orðunum: „Gjörið iðrun, því að ríki liimnauna er i nánd“! Tók ræðumaður það í'ram, að þessi orð skirarans væru ekki síður töluð til þeirrar kyuslóðar, er nú lifði, en til samt.íðar hans. Alt. virtist benda á, að ríki himnanna væri náiægt hinui núlifandi kynslóð, ekki sizt æskulýðnum, eins og þessi fundarhöld lika bæru vott um, — en þá væri eiunig stóruin áríðandi, að orðiu: „gjörið iðrun!“ hljómuðu í allri sinni alvöru í kirkjunni, í húsunum, i lijörtunum. Vorir tiinar væru sanunefndir vitjunartímar frá drotni, varpskúflutimar, — þess vegua riði lífið á því, að hin guðdóinlega iðrunarkrafa gleymdist ekki; hið allra fyrsta, sem drottiun heimtaði af þessari kynslóð, sem ríki himn- anna uú væri að nálgast, hið fyrsta, sem liann hoimt.aði af öllum þeim, er liefðu hlotið skilning á eðli tímanna, væri afturhvarf. Síðan lýsti ræðumaður afturhvarfiuu, hvað það væri í eðli sínu og hvers væri helzt að gæta með tilliti t.il jiess. Eyrst benti liann á hvað afturhvarf eða iðruu væri: Það væri, eins og hið gríska nafn þess (metanoia) benti á, hugarfarsbreyting, ji. e. hinar nátt.úrlegu, holdlegu liugsauir breytt- ust í samræmi við guðs hugsauir. Vér jiættumst vera sjálíum oss nógir, en við hugarfarsbreytinguna opnuðust augu vor fyrir jivi, að vér værum oss alseudis ónógir, værum í sjálfum oss ekki neitt. Að nátt- úrufari værum vér sérgóðir og hrokafullir, en i'yrir aí'turhvarfið yrðum vér auðmjúkir. Með öðrum orðum: afturhvarfið væri fólgið í fullkom- inni breytingu á tilhneigingum og þrá lijartaus, svo fullkominui, að mað- urinn gerði sig ekki ánægðan með neitt það, er minna væri en friður guðs lieill og óskertur og hreinleiki' andans. í slikri hugarfarsbreytingu væri afturhvarfið fólgið, það væri livorki meira né minua. Afturhvaríið

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.