Verði ljós - 01.02.1900, Qupperneq 7

Verði ljós - 01.02.1900, Qupperneq 7
23 listuu á afturhvarfinu í þessuin orðum: „Takið sinnaskifti og snúið yður" (Post.gj. 3, 19). Oss er meðfætt það hugarfar, að vilja vera sjálfum sér nógur; en þetta verður að breytast á þá leið, að vér ekki gerum oss ánægða með neitt annað en guð og náð liaus. — Að eðlisfari erum vér svo sinnaðir, að vér leitum vors eigin, en þetta verður að hreytast á þá leið, að vér æfum oss í að gleyma heiminum yfir guði og finna heiminn hjá guði. í slíkri hugarfarsbreytingu, að því er snertir instu þrá og tilhneig- ingu viljans og hjartans, er afturhvai-fið fólgið. Og gætum vel að því, að afturhvarfið er hvorki ineira né niiuna en þetta, — hvorki meira né iniuna en slík hreyting á gervallri afstöðu lijartans gagnvart sjálfu sér, guði og heiminum. Afturhvarfið er e k k i fólgið í m e i r u en hugarfarsbreytingu. Til afturhvarfs heyrir i sjálfu sér alls ekki inri fullvissa eða fullvissa stað- fest af guðs auda uin persóuulega hlutdeild í fylliugu guðs náðar. Það hjarta, er þannig liefir snúið sér til guðs, þráir eðlilega slíka fullvissu og hún hlotnast þvi um siðir sem ávöxtur andans, er byggist fyrst á trausti til guðs orða, en síðau á persónulegri reynslu. Fullvissa þessi hlýtur fyr eða siðar að hlotnast þeim, sem afturhvarfið hefir átt sér stað hjá, hún er afleiðing afturhvarfsins, en ekki í sjálfri sér einn þátt- ur afturhvarfsins sjálfs. Afturhvarfið er ekki heldur fólgið í því, að verða á einhvern dularfullan hátt „uppnuminn alt upp í þriðja himin“ (sbr. 2. Kor. 12, 2), þar sem maðurinu heyrir óumræðileg orð, sem engum manni er unt að tala, — og því síður er afturhvarfið fólgið í algerðu heilögu syndleysi. Alt þetta er hið blessunarríka síðasta tak- mark afturhvarfsins, en ekki afturlivarfið sjálft. Enginn rnaður þarf því að álíta um sjálfan sig, að lijá honum liafi ekki átt sér stað neitt afturhvarf, þótt hann enn vanti hina óbifanlegu fullvissu — fullvissu staðfesta af guðs auda — um lilutdeild í ríkdómi fyrirheitanua, — eða þótt hann hafi eigi öðlast reynslu fyrir neinu af því hinu óumræðilega, sem engum manni er unt að tala, — né hafi til að bera algert heilagt syndleysi. Afturhvarfið er eiugöngu fólgið í hugarfarsbreytingu, ein- göngu fólgið í því, að hjartað snýr sér að guði og i eiulægri alvöru girnist og þráir guð;-------í þessu er það fólgið og engu fram yfir það. ----— Eu afturhvarfið er e k k i h e 1 d u r n e i 11 m i n n a en þetta. Alt það, sem minna er en slík alger hugarfarsbreyting, — er ekki afturhvarf. Það er því ekki afturhvarf að vera í vísindalegri samliljóð- an við fræðikerfi kristindómsins eða eingöngu liið ytra að ljá kirkju- legum venjum og samþyktum fylgi sitt nó að vera heillaður í tilfinn- ingu sinni og liugfanginu í imyndunaraíii sinu. Það er ekki heldur afturhvarf, að maðuriun lifir i eins konar fagurfræðilegri nautn hins háleita og hugsjónarlega í kristiudómuum, eða að liann temur sór bind- indi að þvi er suertir ýms ákveðiu hvorkinleg efui, svo sem áfengi,

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.