Verði ljós - 01.10.1903, Qupperneq 6

Verði ljós - 01.10.1903, Qupperneq 6
150 VEBÐI LJÓS! Við hádegisborðhaldið var oss sagt, að Sóreyjarbúar og fjöldi bænda úr nágrenninu. biðu vor á torgi bæjarins með vagna, ef fundar- menn vildu létta sér upp og sjá ýmsa merka staði. Var þessum boðum tekið með miklum fögnuði; sá er flutti oss þau var Bjerre prestur í Pedersborg, og bauð hann oss meðal annars að heimsækja sig, en á prestsetri hans má sjá elztu leifar fornaldarvíggirðinga, sem til eru í Danmörku. Yér ókum svo fyrst um bæinn, sem var allur flöggum skreyttur; fagnaðarópin dundu við og blómum rigndi uiður yfir vagn- ana hvar sem ekið var um bæjarstrætin. Á Pedersborg-prestsetri var oss vel tekið. Prestur ávarpaði oss með fagurri ræðu og Pinnar sungu. Þaðan var haldið til Bjernede og þar skoðuð ein af elztu kirkjunum i Danmörku, og síðan til Pjenneslev, en þar er og mjög merkilegt og fornt kirkjuhús. — Yar að þessu ferðalagi hin bezta skemtun. Um kvöldið kl. 8 flutti norskur trúboði, Johannes Johnson, heitan og vekjandi fyrirlestur um „stöðu trúboðsins í lífi kirkjunnar11. Dað jók ekki hvað minst á áhrif orða hans, að hann stóð þarna bókstaflega talað búinn til ferðar suður til Madagaskar; en þar er starfsvið hans. Og að aflokinni ræðu sinni kvaddi hann oss og lagði á stað suður í heim. Næsta dag var trúboðið aftur á dagskrá. Dá flutti dr. med. Maria K. S. Holst fyrirlestur um „læknatrúboð11. Sjálf er hún bæði læknir og trúboði á Indlandi. Síðan talaði sænskur trúboði, Blom- strand, um hið svokallaða „skólatrúboð“, þ. e. trúboð, sem rekið er með því að stofna skóla rneðal heiðingjanua, og hefir gefist mæta vel. Loks talaði Robert Wilder (Ameríkumaður), einn af þektustu trúboðunum á Indlandi og jafnframt einn af forgangsmönnum hinnar kristilegu stúdentahreyfingar um „skyldur hvíta mannsins gagn- vart heiðingjunum11. Miðvikudaginn 22. júlí var „kristindómslíf stúdenta" á dagskrá. Um það urðu hinar fjörugustu umræður. Bezt talaði þó sænskur prestur, Erl. Björck. Hann lagði mikla áherzlu á biblíulesturinn og bænarlífið. Um kveldið flutti norski stiftsprófasturinn Gustav Jensen tölu um „hin sannfærandi áhrif kvöldmáltíðar drottins á kristindóm einstaklingsins11. Var sú tala haldin með sérstöku tilliti til þess, er fara átti fram næsta dag, guðsborðs-göngu allra fundarmanna, enda mun þessi tala stifsprófastsins verða mörgum lengi minnisstæð. Á undan altarisgöngunni næsta dag hólt Gustav Jensen skrifta- ræðuna. Alls 500 manns voru til altaris, því að um morguninn höíðu 30 stúdentar, er undaníarna daga höíðu átt fund með sór á Herlufs- holm, bætst við hópinn. Er það einhver hin hátíðlegasta stuud, sem ég hefi lifað, að sjá allau þaun fjölda streyma upp að altarinu til þess að hljóta þar styrk og blessun að ofan. Við miðdegisborðið voru þakkarkveðjnr fram bornar til hinnar

x

Verði ljós

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.