Verði ljós - 01.10.1903, Side 7

Verði ljós - 01.10.1903, Side 7
VERÐI LJÓS! 151 dönsku forstöðunefndar fundarhaldanna og þakkaði einn fyrir hönd hverrar þjóðar. Fyrir hönd okkar Islendingauna þakkaði Haukur Gíslason stud. theol. Kl. 8 um kveldið var haldinn lokafundur. Hans Kock prestur flutti stutta ræðu og talaði uin Samverjann, sem, er hann haíði lækning hlotið, sneri aftur til þess að gefa guði dýrðina. Síðan talaði formaður fundarhaldsnefndarinuar, Lic. F r. Torm, nokkur ávarpsorð sórstaklega til okkar hinna yngri, — og með játning trúarinnar og faðir vor var þessum 7. „norræna stúdentafundi með kristilegri stefnu3krá“ slitið. Þegar ég lít til baka til þessara fundardaga og minnist alls þess, er þeir höíðu að flytja, verð ég að segja: inndælli stundir get ég nuumast hugsað mér. Og vafalaust munu langflestir þeirra, er þar voru, segja slíkt hið sama. iPað gat ekki dulist, að drottinn sjálfur var þar nálægur með blessun sinni; andi hans var þar yfir öllu, þess vegna tókst alt eins og það tókst. Svo er ráð fyrir gert, að næsti kristilegi stúdentafundurinn verði lialdinn i Noi'egi sumarið 1906, og hefir þegar verið kosin nefnd til að standa fyrir þeim fundarhöldum. garfuglarnir. TTVAÐ er það, hið dragandi og dulda, T T Sem dýpst er í farfugla þrá? Það leiðir þá löngum á vegi og lætur þá ratað fá. Á veginum voðalöngum þá villa bagar ei nein; þeir eiga í eðli sínu svo öruggan leiðarstein. Þeir skunda skapi léttu yfir skýhá fjöll og gjár og horfa úr hæðunum niður í hyldýpis unnir blár. Þeim ægir ei það, sem er undir, þá yfir það hraða þeir sér; í hjörtunum smám er hugur, sem hálfa leið þá ber,

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.